Prestafélagsritið - 01.01.1923, Side 39
34
Þorsteinn Briem:
Prestafélagsritið..
sætta sig sízt við það, að gera ekki nema hlusta, þeir vilja
leggja hönd á plóg.
Kirkjan þarf þessvegna að kosta meira kapps um að fá
mönnum verkefni, að hvetja til kristilegs starfs, en verið hefir.
Og þar á eg ekki eingöngu við svo nefnda leikmannastarfsemi
nágrannalandanna, heldur og trúar- og siðferðisáhrif á þjóð-
málin, bæði atvinnumál og stjórnmál. Vér þurfum kristin karl-
menni í liðsmanna- og foringjastöður í hverri stétt landsins.
Vér þurfum þau í verkamanna- og framleiðendaflokkinn. Vér
þurfum þau í þingsalinn og í stjórnarsessinn. —
Guð gefur þrótt og karlmensku! — Oft er talað um þrótt
og karlmensku heiðinnar trúar, gagnstætt kristinni trú, sem
menn segja að jafnan gangi með niðurlútu höfði, jafnvel móti
gleði og unaði mannlegs lífs, hvað þá móti erfiðleikum lífsins.
Eg vil þá minna á, hjá hvorum trúarbrögðunum koma fram
meiri karlmenskueinkenni á þeim hólminum, þar sem mest
reynir á kappann, — þegar mæta skal dauða og sorg. Eg
ætla fyrst að minna á dæmi frá grísku trúarbrögðunum. Þa&
er goðsögnin um Níóbe, drotninguna hamingjusömu, er átti 7
syni og 7 dætur. En börn hennar voru öll skotin til bana, af
því að hún hafði móðgað aðra móður, sem átti ekki nema
tvö börn. Og þegar móðirin fær ekki huggast eftir börnin sín,.
þá aumkast guðafaðirinn Seifur yfir hana í harminum, og gerir
á henni miskunnarverk. Og hvaða miskunnarverk? Hann
breytir móðurinni í stein á fjalli einu. — En á hverjum sum-
ardegi, þegar sólin skein, þá grét steinninn, svo að tárin
runnu niður um hann allan. Er það ekki átakanlegt, að þegar
sjálfur faðir guða og manna aumkast yfir sært og titrandi
móðurhjarta, þá veit hann ekkert annað ráð við magnlausri
móðursorginni, en ef hann gæti gefið móðurhjartanu dauða,
helkalda hörkuna, og breytt því í stein!
]ú, þennan mátt hefir hinn æðsti meðal guðanna, — þá
lækning getur hann gefið í magnlausri móðursorginni, að breyta
móðurinni í stein! En lækningin sú kemur ekki að notum,
því að jafnvel steinninn — hann grætur! Svo magnlaus er
ímynd karlmenskunnar — eftir hinum grísku trúarbrögðum!