Prestafélagsritið - 01.01.1923, Page 41
36
Þorsteinn Briem:
Prestafélagsritiö.
„Eg lifi f Jesú nafni,
f Jesú nafni’ eg dey;
þó heilsa’ og líf mér hafni
hræðist eg dauðann ei.
Dauði! Eg óttast eigi
afl þitt né valdið gilt.
í Kristí krafti eg segi:
kom þú sæll þegar þú vilt“.
Hallgrímur er ekki meira skáld en hinir heiðnu höfundar.
En hann er meira karlmenni, hugrakkari hetja en þeir, þegar
komið er á síðasta hólminn. — Skáldhetjan forna, Egill á
Borg, ber sig ekki jafnhraustlega. — Engin íslenzk hetja hefir
kveðið slíkan hreystisöng, — og enginn hefir heldur einlægar
og öruggar en hann, falið sig ]esú Kristi á vald.
Eg hefi nú reynt að túlka fyrir yður hreystisöng kristin-
dómsins, hvernig Kristur talar sjálfur og hvernig hann talar
enn í þeim mönnum, sem hann hefir valið að vottum dýrðar
sinnar. — En minnumst jafnframt orða ]óns biskups Ara-
sonar, að:
„Enginn kann með orðum inna
alla hans dýrð í Ietrum skýrða,
þó að hann fengi þúsund tungur
og þær allar á málið snjallar".
Söfnuður minn fékk um síðustu helgi heimsókn af nokkr-
um tugum sveina úr þeim félagsskap ungra manna í Reykjavík,
sem hefir kosið sér að kjörorði: »Kristur er konungur vor«.
Þar voru menn af öllum stéttum. Þar var stúdentinn. Þar var
bóndasonurinn. Þar var verzlunarmaðurinn og þar var verka-
maðurinn. Og allir sungu þeir í kirkju minni glaðværan lof-
gerðarsöng. — Meðal þessara stæltu sveina var eitt lama ung-
menni. Þegar þeir nú báru þennan lama félagsbróður sinn,
hraustlega og varlega, ofan í bátinn og lögðu af stað í hvass-
viðri og úfnum sjó, þá komu mér í hug hinir ungu riddarar
fyr á öldum.
Þegar ungur aðalsmaður var helgaður eða vígður til ridd-
ara, vakti hann í kirkjunni alla nóttina á undan, á föstu og