Prestafélagsritið - 01.01.1923, Síða 46
PresfafélagsritiO.
Skilað kveðju.
41
Þ. e. a. s. að víkja aldrei frá sannfæringu sinni, svíkja aldrei
þá hugsjón í orði né verki, sem hann aðhyltist í hjarta.
Hann langaði til að sjá meira af veröldinni, þegar hann
hafði lokið háskólanámi, og móðir hans fór þá með honum
og systkinum hans báðum suður í Róm, þangað langaði þá
bræður báða. Bróðir Kristófers var málari, og til Rómaborgar
sækja allir listamenn. En Kristófer var sögumaður mikill, og
hvergi er á bygðu bóli eins hentugur staður til sögunáms og
í Rómaborg, þessari höfuðborg heimsins um tugi alda. Þar
sat Kristófer tvö ár og teygaði sögu fornþjóðanna. Hann
segist hafa »lifað« söguna fremur en »lesið« þau ár. Einkum
stundaði hann sögu Grikkja í fornöld. Hann unni þeim um-
fram aðrar þjóðir, því að af þeim sá hann, hve glæsilegt og
veglegt mannlífið getur orðið. Engin sjón þótti honum fegurri
til en sú, hvernig litla snildarþjóðin ver ættjörð sína fyrir
ofureflinu persneska, og honum finst eins og hann »heyri
sorgarstunu frá öllum mannheimi, þegar hnígur í valinn fyrir
innlendri sundrung og erlendu ofríki fræknasta þjóðin og
fríðasta mannlífið í heimi«.
En úr sögudraumum þessum varð Kristófer að vakna. Nú
var annað í efni. Norður í átthögunum var aftur smáþjóð ein
að búast til varnar gegn tveimur stórveldum. Það voru Danir.
Kristófer mundi hvað talað hafði verið á stúdentafundunum
norður þar. Hann var með hugann fullan af hetjulífinu gríska.
Hann þráði, að Svíar og Norðmenn gengi í lið með Dönum.
Það voru sár vonbrigði, er Stórþingið synjaði um liðveizlu.
Hann þoldi ekki við. Hann vildi standa við sín orð, hvað sem
aðrir gerðu. Það var hart aðgöngu að kveðja móður sína í
Róm eins og á stóð; hann var orðinn einka-sonur hennar.
Bróðir hans var nýdáinn úr berklum og systir hans orðin
veik, og nú vildi hann á blóðvöllinn móti ofureflinu þýzka.
Hann sagði móður sinni, hvað sér byggi í skapi, og hún bað
hann fara í friði. Hún skildi son sinn.
Kristófer hélt nú norður heim. Hann skrapp fyrst til Óslóar,
til þess að hafa tal af stúdentum þar. Norska stjórnin hafði
synjað Dönum um hjálp. Margir voru æfir af gremju. Hinrik