Prestafélagsritið - 01.01.1923, Page 79
74
]ón Helgason:
Prestafélagsritið.
biskups Runólfssonar sem hárréttum, en hann breytir ekki
eftir þeim. Sama er að segja um marga af vígamönnum
Sturlungaaldarinnar; þeir vita vel, að þeir hafa í hyggju að
fremja glæpsamleg verk, hrein níðingsverk og kristnum mönn-
um ósamboðin, en taka skriftir kvöldið áður, til þess að geta
verið við öllu búnir. Vfir höfuð að tala verður ekki annað
sagt, en að skriftirnar hafi úti hér í mörgu tilliti haft beint
siðspillandi áhrif, vegna þess hve menn einatt notuðu þær sem
svæfil fyrir samvizku sína. Það má því með sanni segja um altof
marga þeirra tíma manna hérlendra, að þeir »hefðu yfirskyn
guðhræðslunnar, en afneituðu krafti hennar«. Því hlaut að fara
eins og líka fór. Hið siðferðilega líf hlaut að fara forgörðum.
Mannúðar og drenglyndis sér lítinn vott. Menn svíkjast að
óvinum sínum og ganga á gerðar sættir. Orð og eiðar eru
að vettugi virt. Helgustu ættarbönd sömuleiðis. Náfrændur og
mágar fjandskapast hver á móti öðrum, sitja á svikráðum hver
við annan og berast á banaspjót. Hjúskaparlífið kemst í mestu
niðurlægingu og virðingarleysið fyrir konunni nær hæsta stigi.
Lausungin er afskapleg. Á síðari hluta 12. aldar hafði mjög
tekið að bóla á þessu ásta-losi. Alkunna er hversu Jón Lofts-
son var í þeim sökum; hann var eiginkvæntur maður og átti
börn með konu sinni, en gat auk þess börn við fjórum konum
öðrum. Hið sama var um Sæmund son hans. Haukdælir
voru og breyskir í þessu tilliti. Gissur Hallsson, var kvæntur
og átti börn, en gat þó börn við þrem konum öðrum. Sonar-
sonur hans Gissur jarl hafði og hjákonur fleiri en eina, sem
hann gat börn við. Þá voru Sturlungar ekki barnanna beztir.
Iivamms-Sturla hafði kvænst tvívegis og átti fjölda barna í
hjúskap; en auk þess átti hann ein 6 frillubörn. Þórður Sturlu-
son var sömuleiðis tvíkvæntur, en hélt jafnframt frillur og átti
með einni þeirra 6 börn. Sighvatur átti börn með tveim konum
utan hjónabands. Snorri bróðir þeirra átti börn með 5 konum
og voru 3 þeirra frillur. Um Guðmund dýra segir í Sturlungu,
að hann hafi verið mikill kvennafarsmaður og elskað fleiri
konur en þá er hann átti. Og um Þorvald Snorrason í Vatns-
firði er þess getið, að hann lægi í lokrekkju og frillur hans