Prestafélagsritið - 01.01.1923, Side 86
Prestafélagsritiö.
Kristni og þjóðlíf á íslandi.
81
VI.
Sú hin mikla breyting á stjórnarfarinu, sem verður við það
að landið gengur undir konung, hefir í engu verulegu áhrif á
afstöðu almennings til kirkjunnar í landinu. Um þjóðlegt ís-
lenzkt kristnihald er ekki lengur að ræða. Fyrir því hefir
erkibiskupsvaldið séð með vaxandi afskiftum sínum af málum
íslenzku kirkjunnar. Og með kristinrétti hinum nýja er að réttu
lagi norskur kristinréttur ]óns rauða lögtekinn í landinu. Vald
biskupa eykst hröðum skrefum eftir að landið kemst undir
konung. Það eru launin fyrir veittan stuðning. En þótt þetta
vald yrði einatt þungt ok og tilfinnanlegt landsmönnum, þá
verður ekki sagt, að andóf leikmanna gegn því lýsi sér sem
andóf gegn kirkjunni sjálfri sem andlegri stofnun. Hún er á-
fram sú hin heilaga hjálpræðisstofnun, sem í Guðs umboði
flytur sálunum alt það, er þær með þurfa til sáluhjálplegs lífs.
Utan hennar vebanda er engin hjálpræðisvon og sá sem ekki
á kirkjuna að móður, getur ekki átt Guð að föður. Ut frá
þessari há-katólsku skoðun á kirkjunni svo sem guðlegri hjálp-
ræðisstofnun, hélt allur almenningur áfram fullri trygð við hana
og það alveg eins þótt hann ætti í brösum við hina jarðnesku
yfirboðara hennar, sem beittu alþýðuna allskonar misrétti og
ójöfnuði. »Allir vildu deyja undir játning kirkjunnar mála og
trú sem Árni biskup hélt og hafði«, segir í sögu Árna biskups
Þorlákssonar. En traustið til kirkjunnar var ein hliðin á lotn-
ingu almennings fyrir hinni kristilegu lífsskoðun, sem kirkjan
hafði til flutnings og þjóðin gat sízt verið án eins og högum
hennar var komið.
Fjórtánda og fimtánda öldin urðu, eins og kunnugt er, mestu
hnignunar- og eymdatímar fyrir hina íslenzku þjóð. Hin norska
yfirstjórn reyndist brátt alt annað en heppileg og blessunarrík.
Virðingarleysið fyrir þeim rétti, sem íslendingar höfðu áskilið
sér, er þeir gengu Noregskonungum á hönd, gerði vart við
sÍ2 þegar áður en liðinn var fyrsti áratugurinn. Það kom fljótt
í ljós, að Norðmenn Iitu nánast á íslendinga sem hernumda
þjóð, sem þeir gátu farið með eins og þeir vildu. Allur áhugi
6