Prestafélagsritið - 01.01.1923, Page 130
Prestafélagsritið.
Kristniboð í Kína.
125
48 kristniboðar frá »sænska trúboðsfélaginu1) í Kína«, og um
sama leyti voru kristniboðar danska trúboðsfélagsins orðnir 53.
Þar að auki eru fjölmargir Svíar, Danir og Norðmenn starfs-
menn Mið-Kína trúboðsins.
Fyrsti trúboði »Kínatrúboðsfélagsins norska« kom til Kína
árið 1889; þeir eru um 70 nú, og jafn margir frá norska
kristniboðsfélaginu. Starfssvið norsku félaganna er í Mið-Kína
* íylkjunum Hupeh, Honan og Hunan.
Arið 1891 voru miklar óeirðir í Kína víða um land; sjálf-
byrgingsskapur Kínverja og þjóðardramb fékk nú aftur yfir-
höndina, og var því ofsóknum og uppreisnum einkanlega beint
að útlendum mönnum í Kína. í Vangtse dalnum drap skríllinn
tvo enska menn, og þremur árum seinna voru tveir kristni-
boðar sænskir myrtir skamt frá Hankow. Arið 1895 voru 10
enskir kristniboðar myrtir, en þá skall á ófriðurinn við ]apana,
°9 fengu þá Kínverjar um annað að hugsa en að drepa sak-
lausa útlendinga. En á þessum vandræða tímum varð kristni-
hoði tiltölulega lítið ágengt; þó vöktu erfiðleikarnir í Kína
miög áhugann heima fyrir í kristnu löndunum, tekjur kristni-
boðsfélaganna uxu og trúboðum fjölgaði.
Kínverjar biðu ósigur í ófriðnum við Japana, og öllum heimi
yarð Ijóst hve rotið og sundurliðað hið fjölmennasta þjóðfé-
lagsskip var. Þjóðverjum hafði lengi fundist, að þeir þyrftu
að fá sér trygga höfn í Austur-Asíu; nú gafst tækifærið, þeir
íóku Kiá-chow höfnina frá Kína og dágóða landspildu; á
e^tir komu Rússar og Englendingar og tóku sinn bitann hvorir.
En nú var þolinmæði Kínverja lokið; þeim hafði altaf verið
moin illa við afskifti Norðurálfumanna. og nú höfðu þeir orðið
að þola hverja smánina á fætur annari. Stíflan brast árið 1900;
hatursloginn læsti sig um alt land og var ætlað að eyða eign-
Um, lífi og áhangendum allra útlendra manna í Kína, já, öllu
»útlendu« í Kína: talsíma, járnbrautum, kirkjum og skólum.
A Árið 1921 voru þeir 58. Átta önnur saensk kristniboðsfélög boða
knstna trú í Kína — og ýmsum fleiri löndum. Starfsmenn þeirra voru í
Vrra 507, og líklega fimti hluti þeirra í Kína.