Prestafélagsritið - 01.01.1923, Qupperneq 138
Prestafélagsritið.
133
Ávarp.
ótal fagrar hugsjónir, hann mundi innræta virðingu fyrir Guði
og góðum mönnum og öllu því sem fagurt er og gott. Hann
mundi sameina fólkið, gera það sáttfúsara, umburðarlyndara
og skilningsgleggra hvort á annars bresti, lífskjör og hugsun-
arhátt. Hann mundi vekja dugnað og manndáð í gagnlegum
störfum. — Þetta er engin draumsjón. Það er raunar bara
draumur, af því að þetta er enn ekki orðið. Annars er þetta
enginn draumur. Það er blátt áfram satt. Ef þið skylduð efast,
langar mig til að biðja ykkur um eitt: Reyrtið þið sjálfir og
eg er viss um, að reynslan mun sjálf sannfæra ykkur um,
að hér er ekki um neinn hégóma að ræða.
Presfar landsins finst mér að séu sjálfkjörnir vegna stöðu
sinnar til þess að sinna þessu máli, og vona eg, kæru vinir
og bræður, að þið fúslega viljið leggja svo merku velferðar-
máli lands vors ykkar mikilsverða lið með áhrifum ykkar á
ýmsa grein. Ef prestar landsins leggjast hér á eitt, ekki með
hangandi hendi, heldur með lifi og sál, er eg viss um úrslitin.
Eg leyfi mér nú að eggja ykkur alla lögeggjan, ekki aðeins til
þess að hugsa um þetta mál, ræða og rita um þetta mál, heldur
fyrst og fremst til þess að starfa að þessu máli, hver hjá sér.
Eg efast alls ekkert um það, að ef þið gerið þetta að
kappsmáli ykkar, þá sé ykkur sjálfum í hendur fengið mikils-
vert gleðiefni í starfi ykkar, kristnilífi þessa lands til eflingar,
til frambúðar. Og trúað get eg ykkur fyrir því, að sjálfur
hlakka eg óvenjumikið til hverrar slíkrar samkomu mað safn-
aðarfólki mínu, er eg hefi að nokkru lýst, og mundi harla
óánægður, ef upptekinn siður ætti að leggjast niður. Hvort
safnaðarfólk mitt hefir sjálft jafnmikla ánægju af þessu, veit
e9 síður um, sem von er til, en nær er mér þó að halda, að
ýmsum sé að því sérleg ánægja.
Traust ber eg fult til ykkar góðu máli til sameiginlegs
stuðnings og bið drottin að hjálpa ykkur öllum í sameigin-
legu starfi okkar rfki hans til eflingar og sérhverra heilla
settjarðarinnar. Reynivöllum, 12. maí 1923.