Prestafélagsritið - 01.01.1923, Page 166
Prestafélagsritið.
Erlendar bækur.
161
annars en þess að vita með vissu, hvað höf. hefir sagt og borið fram
um þessi áhugamál sín í sambandslandi voru.
Anders Malling: „Lovsang". — Forlagt af H. Aschehoug & Co.
Köbenhavn 1922. — 78 bls. — Verð 4 kr. danskar.
Höfundur ljóða þessara er ungur danskur prestur og er yrkisefnið hin
alþektu orð Ágústínusar kirkjuföður í upphafi „Játninga" hans: „Þú hefir
skapað oss til samfélags við þig, og hjarta vort er órólegt, unz það hvíl-
ist í þér“. — Ekki er hægt að segja að bók þessi sé tilkomumikil, en
lagleg eru þó sum ljóðin, t. d.: „Den evige Enhed", „Min Moder“ og
„Jeg lukker Alverden ude“. S. P. S.
Oscar Geismar: „Andagtsbog". Sommer og Höst. Aschehoug & Co.
Kbh. 1922.
í síðasta Prestafélagsriti er fyrra bindis bókar þessarar getið (Vinter
og Vaar), en þarna er komið framhaldið, sem ekki mun standa að baki
því sem áður er út komið. Þetta bindi er með sama sniði og hið fyrra,
stuttar „hugvekjur", gagnorðar og fjörlega ritaðar, og oft komist snildar-
Iega að orði. Allmikið er þar brugðið út af venjulegum húslestra eða
hugvekjustíl, og minnist eg ekki að hafa lesið um slík efni eins og þarna
eru borin á borð, þar sem eins látlaust og blátt áfram er talað um ýms
lífsins alvarlegustu mál. Enda er bókin öll þannig, að hún hlýtur að
verða hverjum skynsömum lesara til uppbyggingar, hvaða skoðanir sem
hann hefir í trúmálum, þó hinn kristilegi áhugi og lífsskoðun höf. komi
mjög skýrt í| ljós. En hann kemur svo víða við, og tekur mörg af við-
fangsefnum daglega lífsins og brýtur til mergjar, viðfangsefni sem ekki er
venja að sjá skrifað um í slíkum bókum. Hver hugvekja er stutt, flestar
rúmlega ein blaðsíða, en stundum fleiri framhaldandi um sama efni. Bera
þær allar einhverja yfirskrift, stundum úr ritningunni, en ekki ætíð. Væri
þeim ráðlegt að kaupa bók þessa, sem áhuga hafa á skemtilega rituð-
um uppbyggilegum bókum, þar sem höf. talar frá kristilegu sjónarmiði
með skilningi á hugsun og hugarfari nútímamanna. Bókin kostar kr. 5,50
danskar. F. 7- R-
Sænskar bækur.
„Vár kyrka frán början av tjugonde árhundradet periodvis
skildrad. Utgiven genom svenska kyrkans Diakonistyrelse. — III. Tiden 1916
—1920“. — Stockholm. Svenska kyrkans Diakonistyrelses bokförlag. 1922.
Fátt er prestastétt í jafn afskektu og einangruðu landi og ísland er
uauðsynlegra, en að kynnast högum og starfsaðferðum stærri kirkjufélaga,
U