Eimreiðin


Eimreiðin - 01.12.1922, Page 16

Eimreiðin - 01.12.1922, Page 16
272 SUÐURF0RIN EIMREIBíN sem heitir Kevelaer — eg hafði aldrei heyrt það nefnt fyr- en þar er alt katólskt, Maríukirkja með Maríulíkneski (sem eg aldrei sá), sem var haldið heilagt, og mikill átrúnaður á, og voru stórar prócessíur eða helgigöngur gerðar þangað úr héruðunum í kring, og komu þar þá saman margar þúsundir manna. Þar var klaustur, eða einhver þesskonar bygging, og presta-samkunda; voru þar ávalt prestar, sex eða átta að tölu, og einn forseti eða yfirprestur; enginn kvenmaður var þar, nema ein öldruð kona, sem eldaði matinn, en nokkrir þjónar, eða »bræður«, sem þeir kölluðu. Alt var þettá eitthvað múnk- lffilegt eða klausturlegt, en þar var svo mikill friður, svo heil- agur og unaðslegur blær yfir lífinu, að það var eins og maður væri kominn út úr heiminum og í einhvern friðarstað, enda höfðu þorpsbúar engar samgöngur við klausturmenn. Okkur var vel tekið, og vorum við látnir fara inn í borðsalinn, og var matreitt svo, að mér þóttu það krásir, Rínarvín og alls- konar ávextir og gæði — hvað Djúnki talaði um mig, veit eg ekki; en það veit eg, að hann sparaði ekki að prédika um minn lærdóm og gáfur — við borðið trakteraði eg þá strax á því, sem þeir höfðu ekki heyrt áður: Að lesa »Mæcenas atavis edite regibus*1) þannig: »me caenas, at avis edit e regi- bus« (þú etur mig, en fuglinn etur af kóngunum). — Þetta þótti þeim frábær fyndni, því þeir voru glaðlyndir og vel að sér í latínu. Svo, þegar búið var áð eta, þá var mér vísað til sængur; eg fékk þar tvö herbergi og ágætt rúm, og svaf vel um nóttina. Þegar eg kom á fætur um morguninn, þá var Djúnki farinn veg allrar veraldar; eg sá hann aldrei síðan, nema einu sinni í Höfn snöggvast, eitthvað tveim ár- um eftir, og atyrti hann mig þá fyrir óþakklæti, þ. e.: að eg hafði brugðist honum — en eg hafði aldrei lofað honum neinu, en þá sá hann að ekkert varð úr katólskunni, og að honum hafði mistekist að gera úr mér trúarboða, sem eg altaf heú haft óbeit á að vera meðal kristinna manna — alt annað er að boða heiðingjum trú. Annars var Djúnki mér góður, og má eg minnast hans með þakklæti. Eg veit ekkert urn hann, nema það, að hann var loks settur af fyrir drykkjuskap, °g I) Mesenas, þú, sem að langfeðgalali ert af konungum kominn. Upphaf'ð á „Ódum“ Hórazar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.