Eimreiðin - 01.12.1922, Blaðsíða 66
322
SÆMUNDUR FRÓÐI
EIMREIÐIN
fáu stórviðburða, sem hann gaf rúm í söguágripi sínu, að
Sæmundur kom heim. Það er enginn miðlungsmaður, sem vér
höfum hér fyrir oss, svo að einu mætti gilda hvoru megin
hryggjar hann lá. —
Hvað var nú Sæmundur að læra? Galdra, svaraði þjóðtrúin.
Hann var í Svartaskóla, og lærimeistarinn var enginn annar
en sjálfur erki-paurinn, myrkrahöfðinginn. Annað svar fáum
vér ekki hér heima. Vér verðum að leita í öðrum heimildum,
og getum af þeim gjört oss nokkurn veginn hugmynd um nám
Sæmundar, því að það hefir varla verið frábrugðið venjulegu
námi í neinu verulegu.
Háskólar, í þeirri merkingu, sem vér nú notum þá hug-
mynd, voru ekki til orðnir á dögurn Sæmundar, og reyndar
ekki svo að kveði, fyr en löngu seinna. Menn fengu nám sitt
í skólum, sem haldnir voru í sambandi við stór klaustur og
dómkirkjur, og það voru múnkar og kórsbræður eða kanúkar,
sem kendu. Háskólarnir eru þó varla sprotnir upp úr þeim
skólum, heldur mynduðust þeir smámsaman upp úr lausaskól-
um, sem einstakir ágætir lærifeður héldu. Var í Parísarborg
snemma mikið af slíkum skólum, og um miðaldir allar þótti
Parísarborg eitthvert fremsta mentaból í álfunni. Var svo að
orði kveðið að ítalir ættu páfadóminn, Þjóðverjar keisaradæmið
en Frakkar guðfræðina. Myndast í Parísarborg snemma vísir
sá, sem Parísarháskólinn frægi, la Sorbonne, sprettur upp af*
Þó er hann varla talinn til orðinn, svo að kveði, fyr en í 1°^
12. aldar, og hann og háskólinn í Bologna á Ítalíu eru taldif
elstir háskólar í Norðurálfunni. Vmsir ágætir kennarar störf'
uðu í París um þessar mundir, og má frægastan þeirra telja
Pétur Albailard, samtíðarmann Sæmundar og þó það yngri, að
hann er ekki fæddur um þær mundir, sem Sæmundur var
ytra að þessu sinni (1079—1142). En ekki er óhugsandi að
Sæmundur hafi hlýtt á fyrirlestra Vilhjálms frá Champeaux,
sem var stórfrægur af lærdómi sínum, og oft er talinn fvrstl
frægi kennarinn í Parísarborg. — En aðalnám sitt verðum
vér að halda að Sæmundur hafi fengið í einhverjum dóniskóla
eða klausturskóla, og það er sá ókunni skóli, sem svo frasgur
er orðinn á íslandi undir nafninu Svartiskóli. Hver veit nema
þjóðsögurnar af veru Sæmundar í Svartaskóla, geymi franr a