Eimreiðin - 01.12.1922, Qupperneq 47
ElMRElÐIN
KENNARI KEMUR TIL S0GUNNAR
303
V.
Lýðháskólinn stóð á Seli 4 ár. Þá fluttist hann 10 mílur
neðar í dalinn, — eins og hann sigi undan þunga sínum —
suður í Gautsdal. Þessi myndarlegi bændaskóli hafði fengið
mikið orð á sig. Það þótti sveitarbót, að fá þá í nágrenni,
sem að skólanum stóðu, þessa menn, sem létu sér svo ant
um uppeldi æskulýðsins. Þeir þóttu of góðir til að sitja, eins
og í felum, uppi á Seli í magurri útkjálkasveit.
Bændur hugðu gott til skólans, og prestarnir ekki síður.
Þeir gerðu ráð fyrir að óstýrilátum æskulýð væri holl fræðslan
°g menningin, aldrei yrði of mikið af góðu. Reyndar vissu
þeir ekki, hvað þeir áttu að segja um þetta tungumálsfargan
' ]anson og sumum hinna kennaranna. Hann var sagður svo
gáskafullur, þessi Janson, hreinn og beinn ærslabelgur, — en
hann hafði þó lært til prests. Og séra Marteinn kynni nú að
yera fullstrangur. Væri þá ekki mátulegt, að þeim körlum
ienti saman?
Ivar Tyksi hét maður, stórbóndi í Gautsdal, og átti rúmgóð
húsakynni. Hann sýndi þá rausn af sér, að hann bauð skól-
anum heim til sín, og léði honum húsaskjól tvö eða þrjú ár
kauplaust. Eftir það keypti Kristófer Brún sjálfur jörð, einni
"'ílu sunnar, í grend við Bæ, þar sem Pétur bjó, og reisti
þar Vonheima. Pétur í Bæ var einn af þeim fáu mönnum,
s°m kunnu rétt að meta þennan skóla, og skildi hvaða erindi
hann átti. Pétur lagði til timbrið í skólahúsið, að gjöf, og stóð
tyrir smíðinni.
Og skólinn fékk vöxt og viðgang. Þangað sóttu líklegustu
Ur>glingarnir úr dalnum, piltar á vetrum, stúlkur á sumrum;
°g sunnan frá Mjörs var skólinn sóttur og víðar að. Þegar
hér var komið, mætti ætla, að þrautin væri unnin, hið þyngsta
afstaðið, og nú ætti skólinn glæsilega framtíð fyrir höndum.
Kristófer hafði sjálfur tröllatrú á Dalamönnum. »Eftir 20 ár
skara Guðbrandsdalir fram úr öðrum sveitum í Noregi«, hafði
hann sagt. Og þær vonir sýndust ætla að rætast. Það gladdi
°kkur alla, og allra mest Pétur í Bæ.
Ekki eru dæmi til þess í Noregs sögu, að annað eins mann-
Val hafi verið saman komið í einni sveit, eins og þarna var.