Eimreiðin


Eimreiðin - 01.12.1922, Page 101

Eimreiðin - 01.12.1922, Page 101
eimreiðin Þ1NGVALLAF0R 357 hlið undirheima, og reyndar eru hér Elysium-vellir og Tartarus- hlettar hlið við hlið eins og á Phlegra-sléttunni í Campania Felix. Mikla undra kviðu rnætti yrkja út af Þingvallavatni. Þúsundir manna í hátíðabúningi — konurnar prúðbúnar eins og blóm — hafa safnast í hópum á víð og dreif, stimir standa og sumir sitja, í grasgrónum brekkunum niður af austurvegg Almannngjár. Álengdar eru þessar brekkur með ntannþyrp- ingunum til að sjá eins og persneskar flosábreiður, sem af ásettu ráði eru með óreglulegum myndum og litum til að bægja á braut illu augnaráði og heilla til sín hamingjuna. Þegar vér komum inn á sléttuna, leikur hornaflokkur þjóð- sönginn, karlaflokkur syngur og mannfjöldinn lýstur upp fagn- aðarópi og klappar hrifinn höndum. Hinir miklu stuðlabergs- veggir endurkveða og magna þessi fjölbreyttu hljóð og marg- falt bergmál hljómar frá gjá til gjár, frá fjalli til fjalls, yfir sléttuna og vatnið og aftur til baka, safnast í voldttga velkom- anda kveðju til konungs og drotningar. Vér stöndum nú á helgum stað, á stað sem er vígður sögu og sögnum. Gjáin mikla, hraunsléttan, hin streymandi á, heið- blátt vatnið eru minjar frægrar fortíðar og yfir þeim skín sem forðum hin dýrðlega sól. En hvað það er ósamræmilegt að sjá rétt hjá Lögbergi gistihús, sem með goðgá kallast »VaI- höll«, og niður undan Oxarárfossi timburhús með rauðu þaki fyrir konunginn, nauðalíkt leikfangi sniðntt eftir örkinni hans Nóa. Hvað það á undarlega illa við að sjá bifreiðaröðina löngu öðru megin vegarins og þessar mörgtt stikur af baðm- ullardúk skornar niður í sntáfána og veifur, sem blakta í blæn- um og rjúfa samræmi náttúrunnar rneð prjáli ósamstæðra lita. Rúmlega sextíu tjöld hafa verið reist út um vellina og fólkið þyrpist um þau eins og býflugnasveimur. Stúlkurnar, á aullbaldíruðum bolum, glitra í sólskininu eins og frjórykaður rósatordýfill, en tveir konungsþjónar skoppa um í skarlats- rauðum mariuhænu einkennisbúningi og gefa hinu kvika sjón- arspili bjartari blæ. Um leið og eg geng yfir veginn kemur ifreið, sem seinkað hefir, þjótandi ofan á vellina og á eftir hennt ríðandi menn, lausir hestar og hestar undir klyfjum, alt skundar ofan gjána og glamrar margvíslega í, eins og trjá- söngva þreytti þar sinn glamurkliðandi kveldsöng.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.