Eimreiðin - 01.01.1924, Qupperneq 52
48
NVLENDA ISLANDS
himreiðin
íbúa landsins, er íslendingar nefndu Skrælingja, virðist vera
rétt að geta þess, að það, sem mætti heita forsaga nýlendu
vorrar vestra, vitrast oss eins og þar rofi gegnum djúp myrk-
urs og þoku, á líkan hátt, eins og stöku óskir og fjarlæg ljós
varpa daufri skímu yfir Island sjálft, löngu áður en Norð-
menn nefndu það því nafni. Og enda þótt rannsóknir fram-
tímans um það efni geti að vísu aldrei haft nein ákvarðandi
áhrif um ríkisstöðu Grænlands frá fyrstu, ætti að minnast
þess, að allar líkur virðast benda til, að Grænland hafi verið
fundið frá Islandi löngu áður en sá fundur landsins varð,
sem fornrit vor, annálar og aðrar heimildir skýrá frá með
sögninni um Gunnbjarnarsker. Astæða væri til að spyrja, hvort
»]öklajörð«, sem táknar Grænland í Skájd-Helga rímum, se
ekki »terra glacialis« gamalla höfunda.
En um þennan svo kallaða sögulega fund Grænlands verður
það þá einnig nægilegt hér að taka fram, að enda þótt einhver efi
kynni að vera um þjóðerni eða þegnstöðu Gunnbjarnar Ulfs-
sonar, og þótt ætla mætti jafnvel, að hann hefði komist sjálfur
til þessara eyja, verður ekki um neitt landnám að ræða þar>
fyr en ef vera kynni að einhverjir ættingjar hans hér hefðu
kastað eign sinni á þær, og þá hefði það verið íslenskt land-
nám. Að öðru leyti er mest af því, sem haft er í frásögur
um Gunnbjarnarskerin, svo mjög á reiki, að tæplega virðist
byggjandi á því, að sá landfundur hafi í raun og veru átt sér
stað á þann hátt, að orðið hafi tilefni til Grænlandsfara. Miklu
sennilegra mætti teljast, að vitneskja um hið mikla hájökla-
land hafi verið hér til áður og borist landnámsmönnum fra
þeim, sem vitanlega höfðu hafst við hér eða heimsótt Is-
land löngu fyrir landnámstíð. Og á sama hátt hafa Norðmenn
eðlilega öðlast þekkingu um land vort sjálft frá Dretlands-
eyjum, á sínum tíma, þótt sögurnar að vísu geri lítið úr þvi-
En á hvern hátt sem Grænland er fyrst fundið frá Norðurálfu
er það eitt víst, að þegar íslenskir landnámsmenn tóku að
byggja þar saman, var það eigendalaust og án nokkurrar löS'
skipunar, er tekist geti til greina eftir alþjóðareglum. Og þa^
sem þá liggur fyrst fyrir hér, er að sýna fram á gildi hins
íslenska landnáms þar vestra og merking þess gagnvart gamla
allsherjarríkinu á Islandi, samkvæmt þeim skilyrðum, seni