Eimreiðin - 01.01.1924, Qupperneq 81
ÉIMREIÐIN spiritisminn eflist Á ENQLANDI 77
•nnar. Það hefur ekki sérstakt orð á sér fyrir einstaka sann-
sö9li eða samviskusemi. Afstaða þess til spíritismans og skyldra
stefna hefur helst verið hatursfull fyrirlitning. En það er frægt
fyrir það, hve næmt það hefur verið á almenningsálitið. Það
ve't, ef til vill allra enskra blaða best, hvaðan vindurinn blæs
~~ þessi hálf-dularfulli gustur af skoðunum og vilja múgsins.
Blaðið spyr í þessari grein, sem eg hef minst á, hvernig á
þyí standi, að kirkjurnar séu alt af að kveina undan því, að
>nenn leggist frá þeim. Sannleikurinn sé ómótmælanlega sá,
að menn hafi aldrei verið jafn-trúhneigðir eins og á þessum
óögum. Hvers vegna geti kirkjan þá ekki haldið í þá? Og
blaðið spyr enn fremur, hvernig á því standi, að spíritisminn
sé að eflast svo stórkostlega, sem raun sé á orðin, jafnframt því
sem kirkjunum hnigni. Svo að jafnvel fjandmenn spíritismans
eru farnir að kannast við svona mikið. Og jafnvel þeir eru
farriir við og við að spyrja skynsamlega.
Sjálfsagt stafar þetta nokkuð af því liðsinni, sem hreyfing-
unni er lagt af vísindamönnunum. Hver bókin hefur rekið
aöra frá Flammarion, einum af helstu stjörnufræðingum ver-
a'darinnar. Hans skoðanir eru eindregið spíritistiskar. Dr. Geley
°9 prófessor Richet og Dr. v. Shrenck-Notzing taka af-
dráttarlaust í strenginn með fyrirbrigðunum, að þau gerist, og
gefa út um það miklar og mjög merkilegar bækur. Eg geri
rað fyrir, að það geri mjög lítið til, þó að vísindamennirnir,
e>ns og þessir 3, vilji sumpart ekki taka afstöðu til þess, hvort
fyrirbrigðin stafi frá framliðnum mönnum, sumpart telji það
ólíklegt. Aðalbaráttan hefur staðið um það, síðan um miðja
S'ðustu öld, hvort þau undur, sem spíritistarnir hafa skýrt frá,
óæði á hugrænu og efnislegu sviði, gerist í raun og veru
svikalaust, eða gerist ekki. Menn vita, hvernig gengið hefur
^er á íslandi. Meðan nokkuð verulega var deilt á okkur, var
svikabrigslunum sullað út eins og óhreinu vatni. Eins er um
það, sem ritað hefur verið hér á landi gegn tilraunum merkis-
^anna í öðrum löndum. Því hefur alt af verið haldið fram,
aö tilraunamennirnir hafi látið blekkjast af svikum. Svipað
hefur verið í öðrum löndum. Um þetta hefur aðalbaráttan verið,
þangað til á síðustu árum.
Þegar nú þetta aðalvígi andstæðinga spíritismans er hrunið,