Eimreiðin - 01.01.1924, Síða 98
94
RAUÐA SNEKK]AN
EIMREIÐlN
um sínum. En hann endurgalt það aldrei með því að líta við
til hennar. Hún horfði á eftir honum uns hann hvarf. Það
virtist hvíla á honum einhver mara og alt látbragð hans virt-
ist bundið viðjum þagnarinnar. Ástfangin og með aðdáun starði
Uríana á eftir Ardi og gleymdi alveg gamla netinu, sem lá 1
kjöltu hennar. Og þannig sat hún, Úríana hin fagra og Se^'
ríka, stúlkan, sem ungu mennirnir kölluðu: La Fiamma1.
Þannig leið langur tími, og ungan stúlkan fann, að hún
unni Ardi hinum þögla.
Þó að Úríana væri yndisleg eins og sjálf fegurðargyðjan,
hafði enginn karlmaður nálgast hana. Því hún fyrirleit þa>
sem þráðu hana í auðmýkt. Geðríki hennar heimtaði járn'
fastan vilja, sem héldi henni í fjötrum með ofurafli karlmenn-
isins. Hún þráði að horfa í björt, staðföst og óbifanleg, ógn-
um þrungin augu, sem gætu beygt hana og hertekið. Hún
vildi lúta afli þeirra í kærleika eins og dýrðlingurinn píslaf'
vættinu. Hún þráði, að ástin kæmi eins og þrumugnýr, kaerm
eins og ofviðrið, sem þenur út voðir skipanna og ber þaU
langt á haf út. Sál hennar vildi láta sigrast, áður en hún
gæfi sig sjálfa. Ella ætlaði hún að halda áfram að bæta net
sín og hlusta þegjandi á sögur kvennanna og gamalmenn-
anna, sem sátu í kofadyrum sínum á ströndinni og unnu eins
og hún í sólskininu og svalandi blænum utan af hafinu. Annsrs
ætlaði hún að láta sér standa á sama um alt, láta sér nægja
að sýna piltunum fyrirlitningu og syngja kliðmjúku ástsr-
söngvana sína, eins og áður. Því Úríana hafði fagra söng-
rödd, ástríðufulla og hreimmikla.
Svona hafði langur tími liðið, og nú stóð Úríana í fegursta
skrúði æskunnar. Hún var tuttugu og fimm ára. Ásta hafði
hún ekki notið. En það hrygði hana ekki, þótt hún væri heit
eins og loginn, sem liðast líkt og höggormur upp mót himni,
svo sem til að sýna blíðuatlot loftinu, sem gefur honum Hf-
Hún skeytti ekki um að halda sér til. í herbergi hennar
var að eins eitt rúm og gömul dragkista. í henni geymdi hun
föt sín og hörlínið, sem móðir hennar hafði látið henni eftir
í heimanmund. Engin skrautáhöld voru í herberginu, ekki
1 La Fiamma: eldsloginn, hin logheita.