Eimreiðin - 01.07.1924, Page 5
EIMREIÐIN
JOHN MILLINGTON SVNGE
197
Nfstörfum sínum, og það er eftirtektarvert, að engir lögðu jafn
driúgan skerf til þess, að írsk snilli næði að brjótast úr fjötr-
um og bera hin fegurstu blóm, eins og hinn fámenni, ensk-
mentaði írski aðall.
Synge var einn úr þessum fámenna flokki. Hann var leit-
andi sál og gat ekki fundið neinn frið né fullnægju í venjum
°9 lifnaðarháttum æskufélaga sinna. Hann fann streyma um
s'9 orkulindir, sem urðu að fá að brjótast fram, en fengu
ekki, því farvegina vantaði. Þess vegna tók hann að ferðast.
°9 svo kom hin mikla köllun yfir hann, skyndilega og óvænt
eins og yfir Sál, — hann varð konungur.
Leikritaskáldið Synge var fæddur 16. apríl 1871 utanvið við
L*ublin, höfuðborg írlands. Hlaut hann skírnarnafnið Edmund
]°hn Millington Synge, en fyrsta nafnið var aldrei notað. Hann
fékk ágætt uppeldi og tók fyrsta háskólastigið (B. A. stigið)
v'ð Trinity College í Dublin árið 1892. Geta má þess, að hann
*ékk verðlaun fyrir frábæra þekkingu í hebresku og írskri
*UnSU, en í hinni síðarnefndu hafði þá þegar verið settur
kennarastóll við Trinity College. Skal þetta sagt skólanum til
maklegs lofs,- þó að hann sé háskóli aðalsins írska og jafn
'haldssamur og háskólarnir í Oxford og Cambridge. Synge bar
ekki mikla virðingu fyrir skólanum, né þakklátssemi í brjósti
*d hans, nema til írsku deildarinnar. Því þótt hann væri mót-
^aslandi, fyrirleit hann innlimunarstefnu skólans jafn hjartanlega
ems og ramkatólskasti uppreisnarsinni.
Að loknu háskólanámi fór Synge í ferðalög til útlanda, en
Htla ánægju eða hvíld hafði hann af því. Lengi stundaði hann
kljómlistarnám á Þýzkalandi og lærði afbragðs vel á fiðlu. Naut
ksnn engu minna dálætis í fjallaþorpum Suður-Þýzkalands fyrir
^iðluspíl sitt en Goldsmith ') hafði notið þar meira en hundrað
arum áður. Frægðina hlaut hann þó aldrei fyrir hljómlist sína,
bótt hann skildi aldrei fiðluna við sig. Fyrir hennar tilstilli
m*tti hann gestrisni og vinsemd á mörgum bóndabænum, þar
') Oliver Goldsmilh (1728—’74) frægt sháld, fæddur á írlandi. Ferð-
£5'SÍ um Þýzhaland, Sviss og Ílalíu og hafði ofan af fyrir sér með þvf
c<- 'eika á hljóðpípu. Varð fyrst frægur fyrir sögu sína Presturinn á Vöku-
vö'lum (Vicar of Wakefield). Ritstj.