Eimreiðin - 01.07.1924, Blaðsíða 56
248
HUGLÆKNINGAR
ingastöð Coués geta sagt frá samskonar atburðum«, segif
höfundurinn.
Þótt Coué brýni jafnan trú fyrir sjúklingum sínum, 5enr
hann. aldrei neitt til þess opinberlega að fá menn til að að-
hyllast nokkra sérstaka trúarskoðun. Sjúklingamir eiga að
treysta sjálfum sér. En þetta er fæstum nóg. Þeir vilja hafa
einhvern til að trúa á. Þess vegna trúa margir á Coué sjálfan-
En það er honum meinilla við, og hann varar við slíku.
Hann kveðst ekki vera læknir, segist aldrei hafa læknað
nokkurn mann, heldur sé hann að eins kennari, sem kenni
mönnum að lækna sjálfa sig. Sjálfur er Coué trúaður maður
og játar fúslega, að það mundi auka enn meir áhrifavald
kenninga sinna, ef hann læknaði í nafni kristindómsins. Séra
Inglis heldur því fram, að þar eigi kirkjan og prestarnir að
koma til sögunnar og bæta veiluna í kerfi Coués, með því að
veita mönnum hæft andlag í kristindóminum fyrir trú sinni.
Coué hefur grundvallað kerfi sitt á kenningu ritningarinnar
um að yfirvinna ilt með góðu. Hann telur áhrifameira að
treysta ímyndunaraflinu en viljanum, mest sé undir því komið
að gefa bölinu engan gaum, láta ekkert komast að sínum
innra manni nema góðar og heilnæmar hugsanir. Trúðu þv>
að þú fáir það, sem þú óskar þér, og þú færð það áreiðan-
lega, er fyrsta • og æðsta boðorðið í kerfi Coués. Þetta er í
rauninni alveg sama og ritningin kennir.
Að sjálfsögðu er fátt nýtt í kenningum Coués. Huglaekn-
ingar hafa þekst með öllum þjóðum og á öllum tímum, þótt
aðferðirnar hafi verið mjög mismunandi. Því verður ekki neit-
að, að manni finst margt ærið ótrúlegt, sem hermt er af
lækningum þessum, enda má vafalaust gera ráð fyrir að ýkt
sé um þær sem annað. Um kerfi Coués hafa þegar komið
út fjöldamargar bækur á ýmsum málum, og eru þær vitanlega
ærið misjafnar að gæðum og áreiðanleik. En ef trúa má
vitnisburði málsmetandi manna, sem sjálfir hafa verið sjónar-
vottar að atburðum þeim, sem gerst hafa á lækningastöð
Coués í Nancy undanfarin tvö ár, þá er engum vafa bundið,
að huglækningar eru annað og meira en blekkingin tóm-
Arangur sá, sem fenginn er á lækningastöð Coués sýnir ótví-
rætt, að það skiftir ekki altaf máli, hvort þeir, sem við lækn-