Eimreiðin - 01.07.1924, Síða 78
270
HEIMSFLUGIÐ
eimreidin
og ef til vill áfram suður til Brasilíu og þaðan til Evrópu-
Flaug Locatelli þann 17. ágúst frá Hornafirði til Reykja-
víkur á 2 tímum og 50 mínútum, eða á nálega helmingi
styttri tíma en þeir Smith og Nelson, enda hafði ítalinn afl-
meiri vél en Bandaríkjamennirnir. — Á flugferð sinni frá
Reykjavík til Grænlands varð hann fyrir því óhappi að lenda
í loftvillum, varð að setjast á hafi úti, en vél hans skemdist.
Er hætt við að óhapp þetta valdi svo slæmum töfum, að
Locatelli verði að hætta við flugfyrirætlanir sínar fyrst um
sinn, þótt þrautseigur sé og fluggarpur einhver hinn mesti,
sem nú er uppi.
Erfitt er að segja um það, hvort flugferðir þessar hafa
nokkra þýðingu fyrir loftsamgöngur um ísland í framtíðinni,
en ekki er ólíklegt, að þær verði upphaf þess, að hér á landi
verði fastir viðkomustaðir, er komnar eru á reglubundnar flug-
ferðir milli Ameríku og Evrópu. En sennilega verður ekki
langt þangað til, að slíkar flugferðir komist á milli heimsálf-
anna. Ogrynni fjár er nú varið árlega til flugvélasmíða og
flugferða. Verst er, að mikið af því fé gengur til þess að gera
flugvélarnar sem bezt úr garði til víga og auka og fullkomna
lofthernaðartæki þjóðanna. Má vera, að mennirnir fyrirgeri
rétti sínum til að fljúga, með því að beita listinni til mann-
drápa í stað menningar. Margt bendir til þess. Væri ilt til
þess að vita, ef sú fagra íþrótt yrði til þess að magna Vítis-
stefnuna í mannheimum, þar sem með fluglistinni eru fengin
fullkomnari skilyrði en áður til þess að tengja saman heims-
hluta þessa hnattar og hugi þeirra, sem hann byggja.
Sm. S.