Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Blaðsíða 8
8
En langt er nú samt síðan, að raenn tóku að lesa á svip
hvers annars, hverju þeir byggju yíir. Og ekki þykjunist vjer
dagsdaglega vera í miklum vandræðum með að sjá, hvort
vel eða illa liggi á manni eða jafnvel skepnu. Oss virðast t.
d. hrygðar- og h r æðs 1 u-merkin og reiði- og gleði-
lætin glögg bæði hjá mönnum og skepnum. Svo virðast lika
suraar þessar tilfinningar vera bundnar ákveðnum tilhneig-
ingum, og þær segja auðvitað lil sín í háltalagi og framferði
manna og dýra. Svo að ekki er það alveg útilokað, að vjer
getum lesið tilfinningar manna og dýra út úr þeim.
En getum vjer þá svarað þeirri spurningu, sem er enn
vandameiri, hverjar sjeu hinar frumlegustu tilfinningar
manna og dýra? Ja, jeg ætla nú ekki að taka þann vanda
á mig. En jeg ætla að gefa ofurlítið og þá fremur óskemti-
legt sýnishorn af því, i hvern vanda menn koniast og
liversu fljótt þeir verða ósammála, er þeir fara að reyna að
ákveða, hverjar þessar frumleguslu tilfinningar sjeu.
Herbert Spencer mun fyrstur manna hafa bent á
það í sálarfræði sinni, og þó mjög lauslega, að sumar til-
finningar vorar væru eins og bergmál af gömlum eðlishvöt-
um.3) En þó var það einkum Darwin, sem í riti sínu um
látbrigði geðshræringanna tilfærði mörg dæmi þess, að lát-
brigði þessi væru oft ekki annað en leifar af gömlum eðlis-
hvötum.1 2) Einnig benti þýskur maður, að nafni G. H.
Schneider, í tveim ritum sínum um viljalíf manna og
dýra á þetta.3) En enginn þessara höfunda gerði þó ljósa
grein fyrir sambandinu milli geðshræringa og eðlishvata.
Einna næst því kemst Will. James í sálarfræði sinni, þar
sem hann segir: y>Every object thai excites an instinct excites
an emolion as well . . . The class of emotional, is . . . lar-
ger than that of instinctive, impulses, commonly so called.
Its stimuli are more numerous, and its expressions are
more internal and delicate, and often less practical. The
physiological plan and essence of the two classes of im-
pulse, however, is the same.«4) Nær þessu komst hann
ekki nje neinn annar, sem um það hefir ritað áður.
1) II. Spencer: Principles of Ps)'chology, 3rd Ed., § 213.
2) Ch. Darwin: Expression of the Emotions.
3) G. II. Schneider: Der thierische Wille, 1880 og Der
menschliche Wille, 1882.
4) W. James: Principles of Psy.chologj7, II, cliap. XXV, p. 442.