Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 19
Raeður rektors Háskóla íslands
17
sömu deild, Örn í eðlisfræöi, en Þorsteinn í
lífefnafræði.
Óska ég þeim öllum heilla í starfi.
Með bréfi 18. september síðastliöinn til-
kynnti hæstvirtur menntamálaráðherra, að
setja mætti eftir ákvörðun deilda í 6 nýjar
stöður. Sýnir þetta, hversu ör vöxtur er í
kennaraliðinu, svo eigi sé fleira nefnt.
Ég vil einnig bjóða velkomin prófessor
John G. Allee og fil. kand. Ingrid Westin.
Og að sjálfsögðu óska ég þeim eins og
fjölda nýrra aukakennara heilla í starfi.
Eins og að venju hafa kennarar héðan
sótt erlenda háskóla heim til fyrirlestra-
halds og hingað hafa komið margir merkir
útlendir fræðimenn, og verður þess getið í
árbók.
Gjafir hafa verið gefnar margar, t.a.m.
10.000 kr. gjöf vegna afnota af kapellunni,
og þakka ég ambassador Bandaríkjanna.
Tæki til afnota á Keldum hafa borist frá
Alexander von Humboldt-stofnuninni,
ultramikrotom, en The Chain Coffin Childs
Memorial Fund veitti 31.500 $ styrk til
rannsókna dr. Guðmundar Eggertssonar í
erfða-líffræði á Keldum.
Liðið háskólaár einkenndist af nokkurri
spennu, og atburðir á liðnu sumri beindu
mjög athygli almennings að málefnum
Háskóla íslands. Ég hygg, að enginn veru-
legur skaði hafi orðið að því, heldur miklu
fremur gagn, og veitt mönnum almennt
tækifæri til þess að komast að raun um,
hversu þýðingarmikil stofnun Háskóli ís-
lands er.
Þetta tækifæri skal notað til að benda á,
að hinn 20. október síðastliðinn staðfesti
forseti íslands reglugerðarbreytingu á 42.
gr. b um læknadeild og segir þar um inn-
lökuskilyrði:
„Aðgang að Iæknisfræðinámi í lækna-
deild hafa þeir, sem lokið hafa stúdents-
prófi við íslenska menntaskóla eða öðru
samsvarandi prófi. Deildin getur þó sett
lágmarkseinkunnir á stúdentsprófi sem
skilyrði inntöku. Réttur þeirra, er falla á
fyrsta árs prófinu, til áframhaldandi setu í
deildinni skal ekki vera meiri en réttur ný-
stúdenta til inngöngu."
Frá upphafi hafa vissar hömlur verið á
aðgangi að verkfræðinámi og eigi þótt um-
talsvert. Annað mál er, að sé nauðsyn að
setja hömlur, þá verður að gera það tíman-
lega og af sanngirni. Menn verða að spjara
sig, vilji menn ná settu marki.
Ég þakka samkennurum mínum störf
þeirra og virði þau. Ég þakka starfsliði
störfin og vil geta þess með þakklæti, hversu
bætt aðstaða skrifstofunnar er, þar sem
m. a. cand. jur. Stefán Sörensson hefur
gjörst fulltrúi, og mun hann fjalla aðallega
um mál, er lúta að stúdentum, prófum og
fleira. Sýnilegt er þó, að breyta verður til
um skipan skrifstofu til þess að nýta vinnu-
aðstöðuna sem best, auk þess að koma upp
símstöð o. fl. Og mér er fagnaðarefni að
njóta samvinnu um það við Erlu Elíasdótt-
ur fulltrúa, sem verið hefur oss öllunt stoð
og stytta, og háskólaritara Jóhannes L. L.
Helgason, en hann er oss öllum að góðu
einu og ötulleika kunnur.
Máli mínu skal að sinni lokið, enda þótt
Háskóli íslands og stofnanir hans séu með
stærstu fyrirtækjum þjóðarinnar og vanda-
mál hans mörg og mikil, sum næsta vand-
leyst.
2