Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 165
Háskólabókasafn
163
hliða sendingar á ársskýrslum, kennslu-
skrám og öðru kynningarefni.
Rit sem safnið sendi út í skiptum á
tímabilinu eru: Árbók Háskóla íslands
1963-69, Kennsluskrá Háskóla íslands
1969-73, Ársskýrsla Háskólabókasafns
1969-71, Studia Islandica 29-31, Skrá um
íslenzk blöð og tímarit frá upphafi til 1966
eftir Böðvar Kvaran og Einar Sigurðsson,
- og doktorsritgerðir: Um eignarnám eftir
Gauk Jörundsson, Anthropological inves-
tigations of the population of Greenland
eftir Ib Persson, Enska öldin ísögu íslend-
inga eftir Björn Þorsteinsson, Refsingar á
íslandi á þjóðveldistímanum eftir Lúðvík
Ingvarsson, Cleft lip and cleft palate eftir
Pálma Möller og Um Fóstbræðrasögu eftir
Jónas Kristjánsson.
Meðal þess sem safnið fær í skiptum
árlega eru nokkur hundruð doktorsritgerð-
ir, ýmist prentaðar eða fjölritaðar, en
einungis úrval þeirra sætir venjulegri með-
ferð bóka í safninu um skráningu og annan
frágang.
Háskólabókasafn varðveitir bókasafn
Vísindafélags íslendinga og sér um rita-
skipti félagsins við erlend vísindafélög og
-stofnanir. Skiptaaðilar félagsins á þessu
tímabili voru 70, og voru þeim send eftir-
farandi útgáfurit félagsins: Rit 39 (The
Nordic languages and modern linguistics.
Proceedings of the International confer-
ence of Nordic and general linguistics,
University of Iceland, Reykjavík, July 6-
11, 1969. Ed. by Hreinn Benediktsson).
Rit 40 (Crustal structure of Iceland from
explosion seismology eftir Guðmund
Pálmason (drg.)), Science in lceland —
Scientica Islandica, vol. 2.
Prófritgerðir stúdenta. Kennurum ber að
sjá svo um að Háskólabókasafn fái til
varðveislu eitt eintak af öllum sérefnisrit-
gerðum til embættisprófs, svo og ritgerð-
um til B.A.- eða B.S.-prófs, eða öðrum
ritgerðum álíka mikilvægum.
Við árslok 1972 var fjöldi skráðra rit-
gerða sem hér segir:
— Bókasafnsfræði 11
— bókmenntasaga 76
— enska 10
— félagsfræði 1
— guðfræði 114
— landafræði 19
— málfræði 39
— sagnfræði 94
— viðskiptafræði 235
Samtals 599 ritgerðir.
4. Bókband
Fjöldi bundinna eintaka:
1970 1971 1972
a) bækur,tímarit,blöð 369 510 424
b) prófritgerðir (hefting) 86 69 7
Bókbandskostnaður (þús. kr.) 115 183 200