Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 123
Annáll
121
DOKTORSPRÓF
Þann 23. maí 1970 fór fram doktorsvörn
við lagadeild Háskóla íslands. Gaukur
Jörundsson prófessor varði rit sitt „Um
eignarnám" fyrir doktorsnafnbót í lögum.
Prófessor Magnús Þ. Torfason stýrði at-
höfninni, en andmælendur af hálfu laga-
deildar voru prófessorarnir Ólafur Jóhann-
esson og Þór Vilhjálmsson.
Þann 6. júní 1970 fór fram doktorsvörn
við læknadeild Háskóla íslands. Ib Carl
Persson, læknir frá Kaupmannahöfn, varði
rit sitt “Anthropological Investigations of
the Population of Greenland” fyrir dokt-
orsnafnbót í læknisfræði. Deildarforseti,
prófessor, dr. Ólafur Bjarnason stýrði at-
höfninni, en andmælendur af hálfu lækna-
deildar voru prófessorarnir Jón Steffensen
°g dr. A. E. Mourant frá London. (Sjá
æviatriði doktorsefnis hér á eftir.)
Þann 24. apríl 1971 fór fram doktorsvörn
við verkfræði- og raunvísindadeild Há-
skóla íslands. Guðmundur Pálmason verk-
fræðingur varði rit sitt „Crustal Structure
°f Iceland from Explosion Seismology"
fyrir doktorsnafnbót í raunvísindum.
Doktorsritgerðin fjallaði um jarðeðlis-
fræðilegar rannsóknir á berggrunni ís-
'ands, sem byggjast á jarðskjálftabylgjum
Seni komið er af stað með sprengingu.
fJeildarforseti, prófessor Þorbjörn Sigur-
geirsson stýrði athöfninni, en andmæl-
endur af hálfu deildarinnar voru prófessor
hlarcus Báth frá Uppsalaháskóla og dr.
Guðmundur E. Sigvaldason.
Pann 5. júní 1971 fór fram doktorsvörn
vó læknadeild Háskóla íslands. Pálmi
f^föller, prófessor við tannlæknaskólann
v‘ð Alabamaháskóla í Bandaríkjunum,
varði rit sitt „Cleft Lip and Cleft Palate“
fyrir doktorsnafnbót í tannlæknisfræði.
ffhgerðin fjallaði um faraldsfræðilegar og
erfðafræðilegar rannsóknir á skarði í vör
og holgóm meðal íslendinga. Prófessor,
dr. Sigurður Samúelsson, varaforseti
læknadeildar, stýrði athöfninni, en and-
mælendur af hálfu deildarinnar voru dr.
Paul Fogh-Andersen frá Kaupmannahöfn
og Ólafur Jensson læknir.
Þann 26. júní 1971 fór fram doktorsvörn
við heimspekideild Háskóla íslands. Björn
Þorsteinsson, cand. mag., varði rit sitt
„Enska öldin í sögu íslendinga” fyrir dokt-
orsnafnbót í heimspeki. Deildarforseti,
prófessor Þórhallur Vilmundarson stýrði
athöfninni, en andmælendur af hálfu
deildarinnar voru prófessor, dr. Magnús
Már Lárusson og Lars Hamre, prófessor
við Oslóarháskóla.
Þann 4. desember 1971 fór fram dokt-
orsvörn við lagadeild Háskóla íslands.
Lúðvík Ingvarsson, cand. jur., varði rit sitt
„Refsingar á íslandi á þjóðveldistímanum“
fyrir doktorsnafnbót í lögum. Deildarfor-
seti, prófessor, dr. Gaukur Jörundsson
stýrði athöfninni, en andmælendur voru
prófessorarnir dr. Ármann Snævarr og dr.
Magnús Már Lárusson.
Þann 9. desember 1972 fór fram dokt-
orsvörn við heimspekideild Háskóla ís-
lands. Prófessor Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar
á íslandi, varði rit sitt „Um Fóstbræðra-
sögu“ fyrir doktorsnafnbót í heimspeki.
Deildarforseti, prófessor Sveinn Skorri
Höskuldsson stýrði athöfninni, en and-
mælendur af hálfu heimspekideildar voru
dr. Bjarni Guðnason prófessor og dr.
Jakob Benediktsson orðabókarritstjóri.
Þann 8. september 1973 fór fram dokt-
orsvörn við heimspekideild Háskóla ís-
lands. Helgi Guðmundsson, cand. mag.,
varði rit sitt “The Pronomial Dual in