Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 103
LAUSN FRÁ STÖRFUM
Læknadeild
Prófessor, dr. med. Jóni Steffensen var
veitt lausn frá prófessorsembætti í líffæra-
fræði að eigin ósk 1. september 1970.
Hann var skipaður prófessor í líffærafræði
1. febrúar 1937, en kenndi auk þess lífeðl-
isfræði fram til ársins 1957. Haustið 1970
var hann ráðinn til þess að gegna áfram
prófessorsembætti í fjarveru Hannesar
Blöndals prófessors. 1972-75 kenndi hann
áfram nemendum skv. eldri reglugerð.
Kristjáni Sveinssyni var veitt lausn frá
dósentsstöðu í augnlækningum fyrir aldurs
sakir 1. janúar 1971. Hann hafði verið
»>aukakennari“ í augnlækningum frá vor-
misseri 1954 og var skipaður dósent í
augnlækningum 15. september 1959.
Lagadeild
Prófessor Magnúsi Þ. Torfasyni var veitt
Husn frá prófessorsembætti að eigin ósk
15. nóvember 1970. Hann var skipaður
Prófessor 8. júlí 1955.
Prófessor Ármanni Snævarr, dr. jur.,
LL.D., fyrrverandi rektor Háskóla ís-
lands, var veitt lausn frá prófessorsembætti
að eigin ósk 1. maí 1972. Hann var settur
Prófessor 28. september 1948 og skipaður
13. júlí 1950. Hann var kosinn rektor
Háskóla íslands 19. nóvember 1960, var
tvívegis endurkjörinn og gegndi embætti til
15. september 1969. Hann kenndi við
Hgadeild 1972-73 og flest ár síðan sem
stundakennari. Hann hefur setið í dóm-
acfndum um prófessorsembætti og verið
Prófdómari við lagadeild. Dr. Ármann
kenndi kirkjurétt við guðfræðideild 1967-
1979. Hann hefur verið sæmdur doktors-
nafnbót í lögfræði við háskólana í Upp-
sölum og Helsingfors og við Ohio Northem
Itáskólann í Bandaríkjunum og kjörinn
félagi í vísindaakademíunni finnsku.
Dr. Gunnari G. Schram var veitt lausn
frá lektorsstarfi að eigin ósk 1. ágúst 1971.
Heimspekideild
Prófessor, dr. phil. Steingrími J. Þor-
steinssyni var veitt lausn frá prófessors-
embætti að eigin ósk 1. mars 1970. Sjá
Látnir háskólastarfsmenn.
Prófessor, dr. phil. Matthíasi Jónassyni
var veitt lausn frá prófessorsembætti fyrir
aldurs sakir 1. júlí 1973. Hann var stunda-
kennari í uppeldisfræði 1952-57 og var
skipaður prófessor 1. september 1957.
Juha K. Peura sagði lausu sendikennara-
starfi sínu í finnsku frá 1. september 1970.
Preben Meulengracht Sörensen sagði
lausu sendikennarastarfi sínu í dönsku í
febrúar 1970.
Hróbjartur Einarsson sagði lausri stöðu
sendikennara í norsku frá lokum vormiss-
eris 1972.
Verkfræði- og raunvísindadeild
Prófessor, dr. Leifi Ásgeirssyni var veitt
lausn frá prófessorsembætti fyrir aldurs
sakir 1. ágúst 1973. Hann varð kennari í
stærðfræði við verkfræðikennslu haustið
1943 og var skipaður prófessor 1. júlí 1945,
er verkfræðideildin hafði verið lögfest.
Sigurkarli Stefánssyni, cand. mag., yfir-
kennara, var veitt lausn frá dósentsstöðu í
stærðfræði fyrir aldurs sakir 1. september
1972. Hann hafði kennt rúmfræði og
teiknifræði frá upphafi verkfræðikennslu
við Háskóla íslands 1940 og var skipaður
dósent í verkfræðideiid 1. febrúar 1962.
Birni Bjarnasyni, cand. mag.,
menntaskólarektor, var veitt lausn frá dós-
entsstöðu í stærðfræði að eigin ósk 1.
september 1972. Hann kenndi aflfræði frá
hausti 1950 og var skipaður dósent í verk-
fræðideild 1. október 1962.