Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 147
Kaflar úr gerðabókum háskólans
145
III. Próf, nám og kennsla
Heiðursdoktorskjör
Skýrt frá samþykkt læknadeildar aö leggja
til viö háskólaráð, að próf. Jóni Steffensen
verði veittur titillinn doctor medicinae hon-
oris causa. Samþykkt samhljóða.
7. janúar 1971.
Samþykkt að sæma Einar Haugen, M. J.
Steblin-Kamenskij, Gylfa P. Gíslason, La-
jos Ordass og Magnús Má Lárusson dokt-
orsnafnbót í heiðurs skyni á 60 ára afmæli
háskólans að tillögum heimspeki-, við-
skipta- og guðfræðideilda. 15 19?1
Tillaga lagadeildar um að sæma Anders
Vinding Kruse, Giinther Beitzke, Stephan
Hurwitz og Svante Bergström heiðursdokt-
orsnafnbót í lögfræði samþykkt sam-
kÞóða. 9. september 1971.
Samþykkt að sæma Halldór Laxness
heiðursdoktorsnafnbót í íslenskum fræðum
í tilefni sjötugsafmælis hans 23. apríl
1972- 6. apríl 1972.
Námseiningakerfi
Tillaga stúdentaráðs, að námseiningakerfi
verði komið á í háskólanum, lögð fram 5.
febrúar 1970 en málinu frestað. Tillagan
aftur lögð fram 26. febrúar 1970 og þá
samþykkt samhljóða.
»Afbrigðilegar“ innritanir
Inntaka nemenda með önnur próf en
stúdentspróf
Svohljóðandi bókun gerð:
„Breyting á 21. gr. háskólalaga er af-
leiðing af því, að samkv. nýrri reglugerð
um menntaskólanám er gert ráð fyrir öðru
burtfararprófi frá menntaskóla en stúdents-
prófi. Viðauki við 21. gr. opnar möguleika
til inntöku þeirra, sem lokið hafa öðru
burtfararprófi frá menntaskóla en stúd-
entsprófi, að fengnu samþykki háskóla-
ráðs og rektorsembættisins. Einnig er gert
ráð fyrir frekari rýmkun skrásetningar-
heimildar að fengnum meðmælum deildar.
Breytingartillagan lögð fram og sam-
Þykkt “ 2. mars 1972.
Umsóknum um innritun hafnað
Umsóknir 31 umsækjanda með kennara-
prófi um innritun í heimspekideild, við-
skiptadeild og námsbraut í almennum
þjóðfélagsfræðum. Bréf heimspekideildar
24. ágúst 1972, þar sem heimspekideild
samþykkir, að umsækjendur skuli fá leyfi
til innritunar með vissum skilyrðum.
Samþykkt, að háskólaráð telji ekki að
sinni tímabært að hverfa frá þeirri megin-
reglu fyrir inntöku í Háskóla íslands, að
umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi, og
synjar því umsóknunum. Var sú tillaga
samþykkt með 6 atkvæðum gegn 3.
25. ágúst 1972.
Inntökuskilyrði nemenda Tækniskóla
íslands
Á fundi sínum 27. ágúst fjallaði háskóla-
ráð um beiðni eins nemanda, sem
útskrifaður var úr Tækniskóla íslands með
mjög hárri einkunn, um innritun í verk-
fræði. Samþykkti háskólaráð „algera
undantekningu ... vegna námsárangurs í
Tækniskóla íslands" og féllst á, að nem-
andi mætti hefja nám í rafmagnsverkfræði,
lágspennu. Þá var verkfræði- og raunvís-
10