Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 46
44
Árbók Háskóla íslands
titlinum doctor litterarum Islandicarum
honoris causa.
Hinn 4. desember 1971 lauk Lúðvík Ing-
varsson, lektor við lagadeild, doktorsprófi.
Ritgerð Lúðvíks fjallar um Refsingar á ís-
landi á þjóðveldistímanum.
IV. Próffrá Háskóla Islands
Kandídatsprófum og öðrum burtfarar-
prófum (B.A. og B.S.) luku 183 stúdentar,
en að auki 45 nú í haust. Kandídatar skipt-
ast þannig á deildir:
Próf í janúar og maí Próf í sept. 1972
Guðfræði .......................................... 4 3
Læknisfræði ...................................... 20
Lyfjafræði lyfsala ................................ 4
Lögfræði ......................................... 22 13
Viðskiptafræði ................................... 35 11
Kandídatspróf í ísl. fræðum ....................... 4 1
Kandídatspróf í íslensku .......................... 1
B.A.-próf í heimspekideild ....................... 24 10
Islenska fyrir erlenda stúdenta ................... 3
Kandídatspróf í sagnfræði ......................... 3
Fyrri hluta próf í verkfræði ..................... 20 5
Tannlækningar ..................................... 9
B.A.-próf í verkfræði- og raunvísindadeild .... 2
B.S.-próf í verkfræði- og raunvísindadeild .... 30 2
Almenn þjóðfélagsfræði ............................ 2
Sérstök ástæða er til að vekja athygli á
því, að á liðnu háskólaári Iuku fyrstu stúd-
entarnir burtfararprófi í eftirtöldum fjórum
námsbrautum: 24 luku B.S.-prófi í líffræði,
fjórir luku B.S.-prófi i jarðfræði, einn í
landafræði og einn í stærðfræði, og loks
luku tveir B.A.-prófi í almennum þjóðfé-
lagsfræðum.
V. Nýjar deildir og námsbrautir
Á liðnu háskólaári fjölgaði deildum há-
skólans. Stofnuð var tannlœknadeild.
Tannlæknakennsla hafði til þess tíma farið
fram á vegum læknadeildar, eða allt frá
árinu 1945, er tannlæknakennsla hófst við
háskólann. Hafa nú útskrifast um 90 kand-
ídatar í tannlækningum. Reglugerð um
tannlæknanámið er í smíðum. Að deildinni
hafa nú verið skipaðir þrír prófessorar, en
að auki kenna 15 aðrir kennarar við
deildina að meira eða minna leyti.
Námsbraut í almennum þjóðfélagsfræð-
um tók formlega til starfa haustið 1970, en
á árinu 1969—1970 fór fram tilrauna-
kennsla í nokkrum greinum þjóðfélags-
fræða. Námsbrautin nýtur í flestum atriðum
sömu réttinda og ber sömu skyldur sem
háskóladeild. Hún hefur þó ekki fastan
fulltrúa í háskólaráði. Má ætla, að fljótlega
verði farið að vinna að því að stofna þjóð-
félagsfræðadeild. Enn hefur ekki verið
skipaður prófessor við námsbrautina. Tvö
prófessorsembætti verða veitt í vetur, ann-
að í félagsfræði, hitt í stjórnmálafræði. Við
námsbrautina starfa nú þrír lektorar,