Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 137
Annáll
135
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Sjóð Guðmundar J. Andréssonar gullsmiðs
2. október 1969.
Staðfesting forsetans á skipulagsskrá fyrir
Sjóð Guðmundar Andréssonar, gullsmiðs,
útgefin á venjulegan hátt ad mandatum af
dómsmálaráðherra 2. október 1969.
Skipulagsskráin er þannig:
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Sjóð Guðmundar J. Andréssonar,
gullsmiðs.
1. gr.
Sjóðurinn er stofnaður með gjöf Guð-
mundar J. Andréssonar, gullsmiðs, 24.
júní 1968 að fjárhæð kr. 100.000,00 í verð-
tryggðum spariskírteinum, og síðan við
hann aukið samkvæmt ákvæðum erfða-
skrár Guðmundar heitins, dags. 11. októ-
ber 1968, en hann andaðist 11. nóvember
1968. Eignir dánarbús Guðmundar heitins
eru nú undir skiptum. Meðan eignum
þessum hefur ekki verið komið í verð, er
rektor og háskólaritara falið að gæta
hagsmuna sjóðsins fyrir hönd háskólaráðs.
2. gr.
Háskólaráð varðveitir sjóðinn, og skal
það gert eftir því, sem unnt er, í verð-
tryggðum eignum. Háskólaráð hefur á
hendi alla stjórn sjóðsins og ræður styrk-
veitingum úr honum. Endurskoða skal
reikninga sjóðsins með sama hætti og
reikninga annarra sjóða, sem Háskóli ís-
lands á.
3. gr.
Höfuðstól sjóðsins skal aldrei skerða, en
tekjur hans skal nota til styrktar efnilegum
stúdentum og kandidötum, ættuðum úr
sýslunum umhverfis Breiðafjörð, til náms
eða rannsókna við Háskóla íslands, eða í
framhaldi af námi þar. Meðan eignum
sjóðsins hefur ekki verið komið í verð, er
þó heimilt að úthluta árlega allt að kr.
100.000,00, þótt beinar tekjur sjóðsins
kunni að vera lægri. Heimilt er að úthluta í
einu lagi tekjum fleiri ára, ef fjárveiting
hefur fallið niður.
4. gr.
Leita skal staðfestingar forseta íslands á
skipulagsskrá þessari og birta hana í Árbók
Háskólans.