Hugur - 01.01.1996, Side 44

Hugur - 01.01.1996, Side 44
42 Vilhjálmur Ámason leit svo á að lagaleg og siðferðileg tengsl milli einstaklinga séu sprottin af og endurspegli efnahagslegar afstæður og að kerfi borgaralegra réttinda tryggi fyrst og fremst yfirráð og sérhagsmuni ríkjandi stéttar, þótt þau virðist þjóna almennum hagsmunum. Af þessum tveimur ástæðum hafa jafnaðarmenn einbeitt sér að því að jafna lífsskilyrði fólks og breyta efnahagslegum afstæðum þess með ríkisafskiptum. Helsti árangur þessara tilrauna er velferðarkerfi nútímans. Hins vegar getur það ekki fjarlægt nema sumar þeirra efnislegu hindrana sem hamla frelsi okkar; eitt og sér getur það ekki skapað þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að búa í haginn fyrir frjálsa mannlega starfsemi, því framleiðslutengslin eru mikilvægust þeirra. Samkvæmt þessu viðhorfi er hin sanna mennska, frelsi og siðferði, ekki möguleg fyrr en maðurinn hefur frelsast í kommúnisma; fyrst þá eru efnisleg skilyrði þjóðfélagsins með þeim hætti að þau geri öllum kleift að hrinda áformum sínum í framkvæmd þannig að vit sé í.19 Með öðrum orðum myndi það skapa þau félagslegu skilyrði sem nauðsynleg eru til þess að „ríki markmiðanna“, eins og Kant hugsaði sér það, sé mögulegt. Og hið sögulega verkefni að gera þessa hugsjón að veruleika krefst þess að borgaralegu siðferði, sem að hluta til er byggt á kröfunni um einstaklingsréttindi, sé varpað fyrir róða. Samkvæmt kenningunni eiga þessi réttindi sinn þátt í að viðhalda félagslegri kúgun sem aðeins verður upprætt með bylt- ingu.20 í þriðja lagi leiðir af þessu aö jafnaðarstefnan um frelsið sem sjálf- ræði er gegnsýrð af ákveðnum hugmyndum um eiginleg markmið mannlegrar tilveru, hugmyndum um hvernig sönn manneskja á að vera og haga sér. Fijálshyggjumenn leggja áherslu á fjölda þeirra leiða sem standa einstaklingnum til boða, jafnaðarmenn hafa hins vegar meiri áhuga á því hveijar þessar leiðir eru og horfa til þess að í vali sínu á þeim eru menn að móta sjálfa sig veruleika sinn. Vitanlega fer 19 Jean-Paul Sartre, Search for a Method, þýð. Hazel E. Bames (New York: Vintage Books 1968), s. 34. 20 Skýrasta dæmið um borgarleg réttindi sem afnema verður er eignaréttur einstaklinga á framleiðslutækjunum. Sá réttur er meginástæða þeirrar firringar sem heftir alla möguleika manna í borgaralegu samfélagi og þar með frelsi þeirra: „Þetta afl lýtur eigin þróun ... og er í raun helsti stjóraandi vilja þeirra og gerða“. Marx og Engels, Þýska hugmynda- frceðin, s. 33.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.