Hugur - 01.01.1996, Blaðsíða 94
92
Paul Edwards
Að kalla hina allrahinstu hversvegna-spumingu „leyndardóm" eða
„kraftaverk“ eða „ósambærilega" eða „afbrigðilega“ upprætir engan
veginn vandann; það er bara ein leið til að viðurkenna að um vanda sé
að ræða. Ef fallist er á að í öllum öðrum aðstæðum sé aðeins vit í
spumingu ef svar við henni er rökfræðilega mögulegt, þá undrast
maður hversvegna eigi ekki að beita þessari reglu eða þessu viðmiði í
því dæmi sem hér um ræðir. Ef veijandi þess að hin allrahinsta
hversvegna-spuming hafi merkingu viðurkennir að í „venjulegum“
skilningi sé spumingin merkingarlaus en að í einhveijum öðrum og ef
til vill dýpri skilningi hafi hún merkingu, þá vildi maður gjarnan fá
að vita hver þessi dýpri skilningur er.
„Hversvegna “- spuming Pascals
Hiö allrahinsta hversvegna er engan veginn eina óskiljanlega
hversvegna-spumingin sem menn spyija. Spurningin sem áður varð á
vegi okkar, hversvegna lífið sé til, er annað slíkt dæmi ef hennar er
spurt af efagjörnum vísindamanni sem gefur í skyn að hann héldi
áfram að spyija hennar jafnvel þótt við byggjum yfir fullkominni
vísindalegri skýringu á uppmna lífsins. Nákvæmlega að hveiju er
slíkur spyijandi að leita? Frekara dæmi til skýringar er spumingin sem
flestir spyrja einhvern tíma um það hversvegna þeir hafi fæðst á
tilteknum tíma og stað þegar þeir hefðu „alveg eins vel“ getað fæðst á
óteljandi öðrum tímum og stöðum. Pascal lét þessa furðu í ljós í
einum frægasta kaflanum í Hugsunum (Pensées) sínum (28. k.):
Þegar ég hugleiði þann stutta tíma sem lx'f mitt varir, umlokið
eilífðinni á undan og eftir, það litla rúm sem ég fylli, eða get jafnvel
séð, umlokið óendanlegum vfddum sem ég veit ekkert um og sem vita
ekkert af mér, þá skelfist ég og er furðulostinn yfir því að vera hér
frekar en þar; því að það er engin ástæða fyrir því að vera hér frekar
en þar, fyrir því að vera nú frekar en þá.
Á svipaðan hátt víkur Paul Roubiczek, aðdáandi Pascals á okkar
dögum, að því sem hann kallar „ráðgátu fæðingarinnar sem er mikið
mál hjá þeim sem aðhyllast tilvistarstefnu" þegar hann er að telja upp
hinar ýmsu „grundvallar-“ hversvegna-spumingar sem ekki er unnt að
svara. Þetta er