Búnaðarrit - 01.12.1921, Blaðsíða 49
BÚNAÐARRIT
247
23. Til Búnnðarfjelags íslnnds.
í tið fyrri stjórnar Búnaðarfjelags íslands, sneri hr.
Þorkell F*. Clementz sjer til fjelagsins með hugmynd um
heyþurkunarvjel, sem þáverandi formanni gast mjög vel
að, og varð þetta til þess, þótt eigi væri betur um það
búið, að vjel þessi var smiðuð í Danmörku og send hingað
heim.
Eftir að tæki þessi höfðu legið hjer mikinn hluta úr ári,
gerði verksmiðja sú, er smiðað hafði, kröfu um andvirði
þeirra, eða þau að öðrum kosti yrðu endursend.
Um þessar mundir var hr. Porkell P. Clementz staddur
í Svíþjóð.
Nú þótti mönnum, kunnugum málavöxtum, ilt til þess
að vita, að tæki þessi yrðu send óreynd úr landi á sama
tíma og óþurkarnir yllu bændum ómetanlegu tjóni á lieyi,
og leitaði jeg þvi til Búnaðarfjelagsins um að það leysti út
tækin, svo þau yrðu eigi flutt úr landi óreynd. En meö
því að fjárhagsástæður fjelagsins þá voru örðugar, rjeðust
einstakir menn i lántöku til þess að kyrsetja tækin.
Reynsla er að vísu ófengin enn um notagildi áhalda
þessara, en Búnaðarfjelagið mun sjá um að tilraunir verði
framkvæmdar meö þau á þessu sumri.
Með því að tæki þessi voru uþphaflega smíðuð fyrir
meðmæli þáverandi Búnaðarfjelags-forseta, þá leyfi jeg
mjer virðingarfylst að fara þess á leit, að Búnaðarljelagið
kaupi tækin fyrir það verð, er þurfti á sínum tíma þeim
til útlausnar, sem er upphæð vixils þess, sem getið er í
eignareikningi Búnaðarfjelagsins, kr. 2300.00.
Að öðru leyti er jeg við því búinn að láta munnlegar
upplýsingar i tje. Virðingarf.
Guðbrandur Magnússon.