Búnaðarrit - 01.12.1921, Blaðsíða 101
BÚNAÐARRIT
299
kg. 1. þ., haldast við á svo litlu fóðri. Hálf-flokkurinn,
sem fær þó bæði minna og lakara fóður en þurheys-
flokkurinn, þrífst alveg ágætlega, Er naumast hægt að
hugsa sjer betri meðmæli með votheys-verkuninni.
Það er nógu gaman að heyra síðustu ályktunarorð
fjármanns míns, Steingríms Steinþórssonar frá Litlu-
strönd, tekin upp úr dagbók hans, sem hann hjelt um
tilraunirnar:
„Nú hætta tilraunirnar. Þær hafa staðið yfir í 10
vikur. Skal jeg að eins geta þess, þó vigtartaflan sýni
það ekki, að mjer finst þó best og mýkst hold á III.
ílokki (votheys-flokknum), og hann vera að öllu leyti
sællegastur og tekið best fóðri. Voru þó alls ekki betri
ær í honum en hinum flokkunum".
Þetta segir nú sjálfur fjármaðurinn, maður gætinn og
sjerlega ábyggilegur.
Hjer áður gáfum við ánum 0,9—l,o kg. af útheyi í
innistöðu. Nú seinni árin höfum við gefið þeim 0,5 kg.
þurhey og 1,j kg. af votu, og gefist jafn vei.
Veturinn 1919 fengu geldar kýr, káif-fullar, á dag
4 kg. þurhey — 12 kg. vothey (ait úthey) og 2 síldar.
— í vetur fengu geldu kýrnar 4 kg. úthey og 15 kg.
útheys-vothey og 1 síld. Á þessu fóðri fitnúðu kýrnar
og þyngdust.
Hjer set jeg efnagreining eftir Ásgeir Torfason á vot-
heyi og samskonar heyi (töðu) þurkuðu í þurkhjalli, þar
sem efnarýrnunin hlaut að vera svo litil sem unt var
við þurkinn:
Votliey. Þurliey,
Aska 1C,08
Jurtataugar . . . . 27,40
Feiti 1,7C
N.-sarabönd .... 15,00
Ónnur efni . . . . 39,76
Efnagreiningin skýrir sig sjálí. Aðal-mismunurinn:
jurtataugar minni, önnur efni meiri í votheyinu. Þar