Búnaðarrit - 01.12.1921, Blaðsíða 152
350
BÚNAÐARRIT
Rakstrarvjél frá Blom & Sön, Skanderborg(Dan. nr. 3).
Rakaði næstum ekkert í fyrstu umferð. Þoldi líti&
heymagn fyrir tindunum. Seinni umferð tókst litlu betur.
Reyndist yfir höfuð lítt nothæf.
Dráttar-átak var mælt á öllum þessum vjelum, og
reyndist því nær hið sama fyrir allar — um 30 kg.
Mismunur sá, á vinnu þessara vjela, sem fram kom
við tilraunirnar, samkvæmt því sem hjer hefir veri&
sbýrt frá, er í raun og veru meiri en ætla mætti í
fljótu bragði, eftir skýrslunni að dæma. — Lögun tind-
anna er mjög svipuð, þjettleiki tindanna sömuleiðis. Sú
vjelin sem þjettasta heflr tindana er „Lanz "Wery", þó
rakaði „Viking0 betur við tilraunina, og mun það sjer-
staklega vera að þakka betra samræmi í þyngd og
fjöðrun tindanna. Tinda-þjettleikinn er út af fyrir sig
ekki einhh'tur til þess að vjelin raki vel.
Um heildar-árangurinn af þessari tilraun með rakstrar-
vjelarnar. Má í stuttu máli segja, að baðar þær fyrst
nefndu eru vel nothæfar vjelar. Mun þó hvorug taka
fram í hreinrakstri þeim, sem hjer hafa best reynst
áður — nema síður sje. Hinar tvær síðarnefudu, sem
miður reyndust, þykir ekki ástæða til að minnast
frekar á.
Snúningsvj elar.
Snúningsvjel frá Hugo Hartig, Stockh. (5. myncí).
Vjel þessi er af amerískri gerð (Mc. Cormick) —
fjaðraðir forkar, sem sparka upp heyinu afturundan sjer
og hrista úr því.
Vjelin rann mjög vel, er auðveld í meðferð, og virð-
ist sæmilega traust. Má hiklaust telja hana vel nothæfa
á tún og harðlendi, þar sein vel er sljett. Nota má hana