Búnaðarrit - 01.12.1921, Blaðsíða 83
BUNAÐARRIT
281
2. j-úní í Paislay. Sú síðasttalda sýning var lang fjöl-
breyttust. Vegna námamanna-verkfalls var sýningunum 1
Edinborg og Glasgow frestað fram í júlí, svo jeg gat
ekki sótt þær.
Á þeim sýningum, sem jeg sótti, var flest af, og bar
mest. á Agrshire-nautgripum og Oydesdala-hestum. Af
nautgripum var sýnt Agrshire, Fríslands- og stutthyrn-
ings- (Shorthorn) nautgripir. Það var mjög margt sýnt
af Fríslands-nautgripum, og eru þeir fluttir inn frá Holl-
landi. Það kúakyn er gott mjólkurkyn og hraust, og
virðist það vera að ryðja sjer mjög til rúms á Bret-
iandi,
Af hestum voru margar tegundir sýndar. Þær helstu
voru Clydesdale, Huntess (veiðihesturinn), Hackney og
margar tegundir smáhesta (pony). Þessir hestar voru
sundurleitir mjög, enda er notkun þeirra breytileg.
Bretar halda hverju hestakyni vel aðskildu eða hrein-
rækta það,. þó reyna þeir manna mest kynblöndun, en
nota ekki kynblendinga til undaneldis, nema þeir gefi
góðan árangur og svari kröfum tímans. Bretar hafa
framleitt mörg hestakyn, mjög ólík að byggingu, en
hafa aitaf haft fyrir augum kröfur tímans.
Af sauðfje var sýnt Blackface (svarthöfðafje), Cheviot
og Leicester. Mest alt fje í Skotlandi er Blackface-fje og
Cheviot, og eru notaðir Leicester-hrútar og Oxford-down
til einblöndunar, til þess að framleiða gott slátursfje.
Mörg hundakyn voru sýnd og fjárhundar reyndir.
Kurina Skotar að stjórna hundum sínum vel, og sýndu
þeir það á sýningunum af mikilli leikni. Þeir gátu látið
hundinn sækja fjeð og hjálpa til að reka það inn í rjett,.
Þeir stjórnuðu hundunum með því að blístra.
Af alifuglum var margt eýnt. Þar voru margar teg-
undir hænsna, og þær mjög ólíkar. Einnig voru sýndar
endur og gæair. Egg þessara fugla voru líka sýnd.
Svo var sýnt smjör og ostur, og smjör-tilbúningur
'ineð nýtísku strokk og -hnoðborði. Þau verkfæri, sem
1»