Búnaðarrit - 01.12.1921, Blaðsíða 67
BtiNAÐARRIT
265
þessu á hinum gróöurriku engjum, vi8 suma árósa, þar
sem vatn flæðir yflr. Að hagnýta sjer vatnið á líkan
hátt og náttúran bendir til að gera megi, er enn í
barndómi. Flóaáveitan búin aö vera 15 ár í undirbún-
ingi, en það mál þó eigi nægilega rannsakað enn.
Sjávaröldurnar bera ógrynni af þara upp að ströndum
landsins árlega, í honum eru fólgin feiknin öll af áburði
og fóðurefnum, en þetta er lítið hagnýtt. í síld- og flsk-
úrgangi fer einnig afar-mikið af fóðurefnum forgörðum.
Búpenings-áburðurinn þarf að vera vel hirtur, ef rækt-
unin á að haldast við; með honum einsömlum verður
eigi mikil nýyikja. En nú hafa ástæður verið þannig,
að óhætt er að fullyrða, að helmingur næringarefna
þeirra, sem eru i búpenings-áburði, hafa farið forgörð-
um fyrir slæma hirðingu og meðferð við notkunina.
Því verður eigi neitað, að nokkuð hafl verið gert hjer
til umbóta, sem síðar mun sýnt verða. En margar um-
bóta-tilraunir hafa verið fálm eitt, eigi nógu ýtarlega
rannsakað eða eigi verið notfært, þótt til umbóta horfði.
Þannig var fyrir meira en öld siðan, sannað að skógur
gæti vaxið hjer, og bent til hverjar leiðir fara ætti, til
þess að þetta gæti heppnast. Þó heflr lítið verið aðgert.
Eftir aldamótin sýndu tilraunir að tilbúinn áburður gæti
komið hjer að notum, og að það væri öflugt hjálpar-
meðai hjer sem annarsstaðar, til aukinnar nýyrkju, en
þessu hefir verið lítið sint. Tilraunir hata og sýnt, að
grasfræsáning og rófnarækt getur verið hjer til mikilla
nota. Bjómabúum var komið á tót; það gekk vel í byrjun,
en að þeim hefir veriÖ lítið hlynt, og menn skildu eigi
sjálfir tilgang þeirra, og því fór sem fór. Verkfæri manna
til jarðyrkju og bústarfa eru enn á frumstigi, og þurfa
að taka stórfeldum umbótum. Margt fleira mætti til
týna, en við látum hjer staðar numið.
18