Hlín - 01.01.1933, Page 13
Hlin
11
og prýði, að fundarkonur munu þess lengi minnast
með þakklæti. Kl. 9 e. h. bauð kvenfjelagið »Von«
stjórn og fulltrúum til kaffidrykkju í Kvenfjelags-
húsinu. Meðan á kaffidrykkjunni stóð söng kvenna-
kór Siglufjarðar alla norðurlanda þjóðsöngvana og
fleira, undir stjórn söngstjóra Tryggva Kristinsson-
ar. Voru svo ræður haldnar, masað og sungið fram
til kl. 12 um nóttina, þá stóðu allir upp með hlýju
þakklæti og góðum endurminningum frá samverunni.
Skýrslur frá fjelögum.
Skýrsla frá Kvenfjelagi Reyðarfjarðar S.-Múlasýslu.
Kvenfjelagið var stofnað 3. des. 1916 af 16 konum.
Tilgangur þess er fyrst og fremst að sameina krafta
okkar kvenna til að hjálpa þeim, sem erfiðast eiga í
sveitarfjelaginu.
Af þeim 16 konum, sem stofnuöu fjelagið, eru nú
aðeins 6 eftir; hinar fluttar úr sveitinni eða látnar.
Nú er tala félagskvenna 33 og hafa þær aldrei verið
fleiri.
Forstöðukona hefir Anna Stefánsdóttir í Bakka-
gerði verið, síðan fjelagið var stofnað, hefir hún stýrt
félaginu með mestu rausn, og væntir fjelagið að það
fái að njóta stjórnarhæfileika hennar um mörg ókom-
in ár.
Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði á veturna,