Dvöl - 01.03.1937, Page 41

Dvöl - 01.03.1937, Page 41
]) V O L 103 Æ — ó — oh — bjóðið honum inn i Og Súsanna fór. Húslæknirinn lagði hurðina aftur. Þú fyrirgefur. Æ, blessaður, gjörðu svo 'vel. Ég hefi nýjungar. Virkilega? Láttu mig heyra. Hann dró blað úr vasa sínum. Þetta er alvarlegt. Alvarlegt — hvað — slys — a — fljótt — komdu með það. Frúin braut blaðið upp — og las. Uppboðsaugiýsing. Eftir kröfu Verzlunarbankans í Reykjavík 'verður húseign nr. 18 við Blómagötu hér í bænum, með tilheyrandi lóð og mann- virkjum, þinglesin eign dánar- bús iSólons Máni, boðið upp og seld, ef viðunanlegt boð fæst til lúkningar á skuld búsins, auk vaxta og kostnaðar, á opinberu uppboði, sem haldið verður á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. nóvember n. k. kl. 2 e. h. Söluskilmálar, veðbókarvott- orð og önnur skjöl, snertandi söl- una, verða til sýnis hér á skrif- stofunni viku fyrir uppboðið. Og svo las frúin vanalega und- irskrift, sem menn geta til frek- ari sönnunar lesið í Lögbirtinga- blaðinu, sem út kemur hér í bænum. Á meðan frúin las auglýsing- una, fór skjálfti í gegnum hana — hún missti blaðið úr höndum sér — og reikaði fram á gólfið — hún snerist á hæl, óð fram og aftqr um stofuna —- og húslækn- irinn kom engu tauti við hana — hún reif í hár sitt. Svo öskraði frú Máni upp yfir sig —- Sólon — æ, Sólon — allt verður tekið af mér — húsið, garðurinn -— allt nema börnin -— nú hljóðaði frúin hvað eftir annað — svo grét hún — og loks henti hún sér á grúfu yfir legu- bekkinn, svo að söng í stálfjöðr- unu'm. Ijlúslæknirinn gekk til hennar, lagði höndina þétt á öxl ihennar og sagði hróðugur: Ég býð hæsta boð. Frú Máni stundi, Heit undir- gefin í augu hans — og féll um háls honum. Verðlaunasaga. Fyrír nokkrum misserum var efnl til alpjóða-verðlaunasamkeppni í skáld- sagnagerð. Þátttaka var mikil frá mörg- um löndum. Fyrstu verðlaun hlaut skákí- sagan „Rue du chát qui péche“ (Veiði- kattargata). Höfundur þessarar skáld- sögu er ungversk slúlka, Jolán Földes. Hún er stúdenl og á heima í París, enila er sagan skrifuð á frönsku. ..Veiðikatt- argata“ lýsir líft ungverskrar fjölskyldu, sem flúið hciir atvinnuleysisdraugiiín og erfiðleiktma í heimalandt sínu og setzt að i l’arís. Aðalsöguhetjan er ttng stúlka. Þetta ungverska fólk, sem sagan segir frá, fær að horíast í augu við þábcisku staðrcynd, að París er ongin paradís, Þar er líka atvinnuleysi og erflðleikar. Vafalíiust mun ýmsa fýsa að lesa pessa frægtt bðk og skal peim mörgu, sem ekki skilja frönsku, en lesa Norður- landamálin, bent á nýútkomna sænska pýðingu á henni: „Fiskande katlens gata“ (útg. Albert Bonniers förlag, sænsk- ar kr. 6,50). Verðl. vorti Ö0 pús. kr.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.