Búnaðarrit - 01.01.1991, Blaðsíða 60
Garðyrkja
GarðarR. Árnason
Störf mín á árinu 1990 voru með svipuðu
sniði og áður, þ.e. einkum í þágu garðyrkju
og garðræktar, bæði fyrir atvinnu- og áhuga-
menn. Þar af fór mestur tími í að sinna ýmiss
konar ræktunarleiðbeiningum fyrir garð-
yrkjubændur. Mikið var um símahringingar
og nokkuð um bréflegar fyrirspurnir, sem ég
reyndi að svara eftir bestu getu. Eftir því sem
tök voru á, var reynt að heimsækja mikilvæg-
ustu garðyrkjuhverfin reglulega. Erfið færð í
upphafi ársins trufluðu þessar áætlanir nokk-
uð, en þó voru flestar garðyrkjustöðvar
heimsóttar tvisvar til þrisvar sinnum á árinu. Með tilkomu Magnúsar
Ágústssonar í starf ylræktarráðunautar varð sú breyting á starfssviði mínu,
að meginstarf mitt verður með grænmeti.
í heild var ræktun útigrænmetis svipuð og á síðasta ári, nema í hvítkáli og
blaðlauk. Veruleg aukning varð í hvítkáli, þar sem uppskeran varð mun
meiri en neyslan. Ræktun blaðlauks dróst hins vegar verulega saman, og til
að framboð íslenskrar framleiðslu sé nægilegt, mætti stórauka ræktun
blaðlauks. Greinilegt er, að framboð íslensks útigrænmetis er sífellt að
lengjast fram eftir vetri með tilkomu fullkomnari kæligeymslna, t.d. var til
íslenskt hvítkál fram í febrúar.
Vorið fór mjög vel af stað sunnanlands, en kuldakast gerði á Norðurlandi
í byrjun júní. Um 10. júlí breytti um veður, með sól og hita norðanlands og
dumbungi syðra. Spretta útigrænmetis var því víðast hvar mjög góð og
uppskera margra tegunda óvenju snemma á ferðinni. 17.-19. september
gerði harðar frostnætur, en olli þó ekki mjög miklu tjóni.
Lítil breyting var á framleiðslu grænmetis úr gróðurhúsum frá síðasta ári.
Tómatar voru ræktaðir í um 37.000 m2, gúrkur í um 20.000 m2 og paprika í
um 17.000 m2. Fram að 10. júlí var bjart og hagstætt veður sunnanlands, en
eigi að síður var uppskera tómata óeðlilega seint á ferðinni.
1989 var stofnaður starfshópur, sem ég átti sæti í, til að takast á við nýtt,
mjög alvarlegt meindýr, ameríska blómatripsið, sem olli þá miklum skakka-
föllum í nokkrum gróðrarstöðvum. Átakið virðist hafa tekist nokkuð vel,
ekki varð um frekari útbreiðslu blómatripsins að ræða 1990, og á nokkrum
stöðvum virðist hafa tekist að útrýma því. Átakið hefur einnig skilað sér
34