Morgunn - 01.06.1921, Qupperneq 45
MORGUNN
39
Sem dæmi þess, hve mr. Turvey sá stundum, þegar hann
var sízt af öllu að hugsa um að halda tilraunafund, tek eg
stutta frásögu úr þessum kafla bókarinnar. Eg þýði hana
af 84. blaðaíðu:
»Hinn 10. soptembcr 1906 bauð einn vina minna mór
í siglinga-ferð á lystiskipi með fáeinum kunningjum sin-
um, er hann hafði undirbúið. Eg þá boðið með þökkum og
hann svaraði: »Gott og vel, hittið oss á veBtur-járnbrautar-
stöðinni í Bournemouth, og eg skal kynna yður liinum*.
Eg bið lesarann að gera sér ljóst, að eg var ókunn-
ugur öllu hinu fólkinu, þekti engan nema húsbóndann.
Þegar eg kom á járnbrautarstöðina, hitti eg vin minn, og
með honum þrjár konur og tvo karlmenn. Eg sá líka tvo
»framliðna menn« — sjómann og hermann —, sem sióðu
spölkorn frá hinum. Vér fórum inn í lestina, og ofan að
höfninni og rerum því næst út i lystiskipið. Er vér höfð-
um siglt um stund, barst samtalið að »dulrænum efnum«,
og eg var spurður: »Getið þér séð nokkuð með nokkur-
um hérna?« Eg sagði þeim frá þessum tveim ósénu föru-
nautum vorum, og auðvitað fóru þau að brosa. En þegar
eg lýsti hermanninum fyrir annari konunni og sjómann-
manninum fyrir hinni, þá játuð báðar, að lýsingarnar
væru réttar. Eg læt fylgja bréf frá húsbóndanum þessu
til 8taðfestingar«.
Sú staðfesting er dagsett 16. maí 1907, og undirrituð
af C. Pontifex, sem boðið hafði mr. Turvey í siglinga-
ferðina og er auðugur mentamaður i Bournemouth. Eg
kom til þeirrar borgar sumarið 1919 og naut þeirrar ánægju
að vera gestur hans og mintumst við þá á mr. Turvey.
Talaði hann um hann með aðdáun.
Annar lcaflinn er um slcygni d opinberum mannfundum.
Mr. Turvey gerði það stundum i'yrir beiðni spíritista, eink-
um félagsins í Bornemouth, að gefa skygnilýsingar á fund-
um. Hafði hann þá þann fasta sið, að láta skrifa í bók
sína aðalatriði þess, er gerðist: hve mörgum hann lýsti,
og hve margir af þeim þektust, öll helztu atriði hverrar