Morgunn - 01.06.1921, Side 50
44
MORGUNN
Til þess að lengja ekki mál mitt um of, verð eg að
stytta frásögurnar sem mest eg get, og svo er um þá, er
eg vel úr þessum kafia.
Maður að nafni J. Allan kom inn til hans einn dag í
byrjun ársins 1903. Var erindið að leggja rafmagnsljós í
hús hans. Mr. Allan var honum alókunnugur, þótt heima
ætti hann í Bournemouth. Barst viðræða þeirra að dul-
rænum efnum, og er mr. Turvey kvaðst vera. gæddur
dulgáfum, gerðist hinn forvitinn að reyna þær. Og hann
varð í meira lagi hissa, þvi að hann vottar í bókinni, að
mr. Turvey hafi lýst þessu fyrir sór: Að hann væri kvong-
aður, ætti eitt barn, son og nefnt fult nafn hans; geíið
rétta lýsing á meiri hluta húss hans og húsgögnunum í
því; lýst konu hans og getið sérstaklega um einkennilega
buddu, er hún bæri á sér; að rekistefna hefði orðið þá
um morguninn út af bókum í skrifstofu hans, er lagðar
hefðu verið á rangan stað. Því næst haíi hann skyndi-
lega sagt, að móðir hans ætti heima i Glasgow á Skot-
landi; hafi lýst húsi hennar að utan og innan og getið
sérstaklega 'um gamalt sverð, sem héngi þar á einum
veggnum, og að einn af forfeðrum hans hefði notað það
á Quebee-hæðum undir forystu Wolfe’s, sem hafi verið
rétt; en því næst. bætti við: »Móðir yðar liggur veik;
og það hryggir mig að þurfa að segja yður, að hún þjá-
ist af öðrum sjúkdómi en þeim, sem verið er að lækna
hana af, vegna misskiluings«. Enn fremur gaf hann mr.
Allan langa og nákvæma lýsing á æfiferli bróður hans og við
hvað hann væri þá að fást (scm eó gullgröft í AlaBka).
Alt var þetta rétt — nema mr. Allan kom þetta um
ejúkdóm móður sinnar á óvart. Hann lét því nýja læknis-
skoðun fara fram. Kom þá í ljós, að hún var að dauða
komin af krabbameini, en hafði áður verið talin sjúk af
lendagigt. Mr. Turvey segist hafa »fundið«, að hún væri
komin að dauða, en ekki viljað segja syni hennar það.
Hann bendir og á, að slíkt dæmi sýni ijóslega, hve ófull-
nægjandi hugsanaflutnings-skýringin sé. Þarna hafl hann