Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 3
MORGUNN
129
Sálarrannsóknir og sannanir.
Erindi flutt i skólasal Sigiuf)arðarkirk]u 15. ágúst 1937.
Eftir síra Kristinn Daníelsson.
Heiöruðu tilheyrendur!
Þegar ég hafði dvalið hér þó nokkra daga, athafna-
laus í þessum athafnasama bæ, þar sem margir vinna
stundum dag og nótt, til þess að sjá fyrir sjálfsögðum
jarðneskum þörfum, þá datt mér í hug, að sæmra væri,
að ég, eins og aðrir, hefðist nokkuð að, þótt ég væri hér
kominn, gamall og slitinn, mér til hressingar og hvíldar
frá þeim hugsunum og viðfangsefnum, sem hugurinn
annars dvelur helzt við og geta haft sitt erfiði og
þreytu í för með sér þegar ég er heima, þótt verklaus sé
nú orðinn að kalla. Ég gæti t. d. reynt að semja og flytja
erindi, til að fræða um atriði, er snerta aðra og enn
þýðingarmeiri hlið lífsins, en þá sem hér kallar menn
daglega til athafna.
Þessvegna er það, að ég hef stefnt yður saman hingað
í kvöld, til að biðja yður að hlýða litla stund á mál mitt
um það efni, sem ég hef auglýst að ætti að vera inntak
erindis míns.
Ég þykist fullviss um, að yður sé öllum kunnugt, að til
er félag, sem heitir Sálarrannsóknafélag íslands, og þá
einnig í aðalitriðum, hvað sé verkefni þess, sem sé að hafa
með höndum á þann hátt, sem við verður komið, rann-
sókn á svokölluðum dulrænum fyrirbrigðum og útbreiða
þekking á þeim, og svo út frá þeim, að álykta sannan-
irnar sem af þeim leiða, sannanir fyrir framhaldslífi sál-
arinnar, og þarf þá ekki lengra að fara til að sýna hve
afar þýðingarmikið alt þetta mikla mál er: ekki að telja
okkur trú um að til sé líf eftir þetta líf, heldur sanna það
9