Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 35
M O R G U N N
31
etersins eða efnisins, eftir því sem þörf krefur, þá getur
jarðlífsvitund hans notað báða líkami persónuleika hans
jöfnum höndum, hvorn í sínu lagi eftir því sem ástæða og
nauðsyn er til, og þá þarf stundaraðskilnaður líkamanna
engri truflun að valda á jafnvægi sálarlífsins, en aðskiln-
aður eter- og efnislíkamans er óhjákvæmileg nauðsyn til
þess að slík víkkun vitundarsviðsins geti orðið mönnunum
veruleikur.
Löngun okkar vísindamananna hér er að vinna að því
að hjálpa stéttarbræðrum okkar í ykkar heimi til að finna
upp áhald er geti náð ljósmyndum af eter- og efnislíkama
mannsins samtímis, og erum við nú að reyna að koma
slikri þekkingu til þeirra. Og þeim tekst þetta með tíman-
um, þeim heppnast að beizla hinar fínu sveiflur eterlíkam-
ans. En slík uppgötvun myndi ótvírætt sanna tilveru eter-
hkama mannsins og framhaldandi persónulega tilveru hans
eftir líkamsdauðann, og þessvegna er okkur þetta svo mik-
ið áhugamál.
Menn kunna máske að segja, að einkar auðvelt sé að
falsa ljósmyndir og beita blekkingum í sambandi við þær;
en er í raun og veru ástæða til þess að gera vísinda-
mönnunum svo barnalega heimskulegar getsakir, að
þeir vinni með það eitt í huga að blekkja sjálfa sig
og aðra? Svo er það líka ofur auðvelt að gera jafnan þær
varúðarráðstafanir í hvert sinn, er útiloka öll hugsanleg
svik.
Tilraunir til þess að ná ljósmynd samtimis af eter- og
efnislíkama mannsins þurfa að fara fram í rauðu ljósi. Til
myndunar ætti einkum að velja þá menn, sem vitað er
um að geti yfirgefið jarðneska líkami sína, dvalið á öðrum
tilverusviðum og flutt með sér yfir í dagvitundina endur-
minningar frá slíkum ferðalögum. Til þess að jákvæður
árangur verði af slíkum tilraunum, þarf að nást samstill-
ing milli sveiflustigs líkamanna beggja.
Að svo miklu leyti sem okkur er kunnugt, er enn ekki til
neitt slikt tæki, sem geti náð hinum finu sveiflum eter-