Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 94
90
MORGUNN
Á víð og dreif.
Eftir ritstj.
Á liðnu ári hóf Þjóðkirkjan útgáfu nýs málgagns, sem
nefnist Kirkjublaðið. Kirkjuritið hafði þá verið eina mál-
gagn íslenzku Þjóðkirkjunnar, frá því er það hóf göngu
sína 1935. Fyrstu ritstjórar þess, ágætismennirnir Sigurð-
ur P. Sívertsen og Ásm. Guðmunds-
KIRKJURITIÐ. son, háskólakennarar, birtu eftirtekt-
arvert ávarp til lesenda í fyrsta heft-
inu, sem ritað var af skilningi á þörfinni fyrir meira krist-
indóm með þjóðinni. Nú er ritið að fylla fyrsta áratuginn
og verður ekki annað með sanngirni sagt, en það hafi birt
mikinn fjölda prýðilegra greina, og að vel hafi verið vand-
að til útgáfunnar í hvívetna. En hins má spyrja: Hefir
Kirkjuritið reynzt jafn áhrifaríkt og efni stóðu til? Kaup-
endafjöldinn sannar ekkert um það, því að hverjum ein-
stakling fjölmennustu embættisstéttar landsins hefir ver-
ið gert að kaupa ákveðinn eintakafjölda. En er það lesið
eins mikið og margar hinna góðu og þörfu ritgerða, sem
það birtir alla jafna, verðskulda? Því miður er ekki hægt
að fullyrða það. Ég hefi lagt mig nokkuð eftir að komast
fyrir það, bæði hér syðra og út um landið, og ég hefi ótrú-
lega sjaldan x-ekið mig á fólk, sem les Kii'kjuritið að jafnaði.
Mér er ekki grunlaust um, að enn megi fá hjá kaupendun-
um allmikinn búnka af ólesnum eintökum. HvaÆ veldur?
1 ritið hafa skrifað ýmsir fremstu menn kirkjunnar og
nokkrir ritfærustu menn þjóðarinnar aðrir, og þó mun
það mála sannast, að mikill meiri hluti þjóðarinnar lætur
sig alveg einu gilda, hvort það heldur áfram göngu' sinni
eða hættir að koma út. Hér er mikið alvörumál á ferðum,
ekki sízt þegar þess er gætt, að hér er um að ræða málgagn