Morgunn - 01.12.1956, Side 41
MORGUNN
119
endilega frá miðilsins hendi, ef hann er transmiðill og
fellur í meðvitundarlausan svefn, heldur hjá oss hinum,
sem með fundina förum. Ég held, að þeir tímar muni
koma, að enginn fái að stjórna slíkum tilraunum, eða slík-
um fundum, fyrr en hann hefir lokið ákveðnu námi, eink-
um í sálfræði. Ég held að þeir tímar komi, og þá verður
málefnið allt miklum mun betur á vegi statt gagnvart nei-
kvæðum mönnum en nú er.
Hitt tel ég yfir allan efa hafið, að fyrirbrigði, eins og
þau, sem sannfærðu hinn ágæta frumherja, hæstaréltar-
dómarann Edmonds, muni halda áfram að sannfæra hugs-
andi og sannleikselska menn, og muni þola hverja þá gagn-
rýni, sem þau verða með sanngirni beitt.
J. A.
★
Góðvildarleysið
Hver er afsökunin fyrir helmingnum af góðvildarleysinu í
heiminum? Hver er orsökin til mestrar hryggðarinnar? Ekki
skortur á auðæfum þessa heims, heldur skortur á kærleiksríkri
Imgsun. Þið hugsið ekki; þið gleymið. Þið vanrækið, af því að
bið hugsið ekki. Þið lofið kærleikanum, sem með ykkur býr, að
kólna. Kærleikurinn deyr, þegar þið hugsið aldrei um þann, sem
Þið elskið.
Fyrir því skuluð þið hugsa um þá alla. Ef þið getið ekkert
annað gert, þá hugsið um þá með ástúð; því að kærleiksrik vin-
arhugsun er engill, sendur frá guði til þess að flytja sálunni
blessun.
„Bréf frá Júlíu“.