Morgunn - 01.12.1956, Page 46
124
MORGUNN
munu þeir trúa því, að það sé hann kunningi þeirra, djöf-
ullinn, sem leiki alla þessa leiki. Og það er fyllilega af-
sakanlegt að þeir neiti að hafa nokkuð saman við hann að
sælda. Let sleeping dogs lie, segja Englendingar, og það
er heilbrigð varúðarregla. Ef þú glettist við sofandi hund,
veiztu ekki við hverju þú mátt búast af honum. Og af
myrkrahöfðingjanum hefir mér alltaf skilizt að einskis
góðs væri að vænta. Þó verð ég að viðurkenna það, að sé
það hann, sem þarna er að verki, þá hefi ég um mína
daga séð hann gera mikið gott, en vera má að hann hafi
þá af klókskap sínum gert það til þess að illt mætti af
hljótast — snúið við alkunnri og gamalli reglu.
Hinir eru þó prestarnir miklu fleiri sem hugsa skyn-
samlega og vita að spíritisminn er lykill að þekkingu á
því, hvað við tekur eftir dauðann — að svo miklu leyti
sem við höfum skilyrði til þess að skynja það og þekkja.
En sumir hafa þeir keypt sjer fimm pör akneyta, þurfa
að reyna þau, og geta því ekki sinnt málinu, eða eru ný-
giftir, sem er engu síður afsökun. Já, þeir hafa ýmsir öðru
að sinna en sóknarbörnum sínum.
En hinir eru líka til — sjálfsagt nokkuð margir — sem
rækja köllun sína af áhuga. 1 sóknum sumra þeirra er
efalaust þá menn að finna, karla eða konur, sem gæddir
eru miðilshæfileika og líklega mundu fást til að neyta
hans, ef rétt væri að þeim farið, þegar svo merkur maður
sem presturinn byðist til að vera leiðtogi í allri funda-
starfsemi. Og presturinn getur ávalt fengið eitthvert valið
fólk til þess að vera með sér í þeim hring, sem nauðsyn-
legt væri að mynda. Ég er í engum efa um það, að í prest-
legu starfi sínu gæti sóknarpresturinn haft af þessu mik-
inn styrk.
1 sveitum ætla ég að torvelt mundi að koma þessu við,
sökum strjálbýlis og ekki síður sökum mannfæðar á heim-
ilunum. En í stöku stað mundi það þó reynast mögulegt.
Það er vægast sagt mikill sofendaháttur af prestastétt-
inni almennt að leiða spíritismann hjá sér. Ég hefi ein-