Morgunn - 01.12.1956, Blaðsíða 52
130
MORGUNN
ferð minni. En þau var ég búinn að sjá margsinnis áður,
þótt ég kannaðist ekki við þau um nóttina. 1 lága húsinu
eru verzlanirnar Litla Tóbaksbúðin og Veiðimaðurinn.
Datt mér nú í hug, að réttast væri að fylgja næturslóð
minni og fór fyrst inn í Veiðimanninn. Þar þekkti ég
óðara búðarmanninn frá því um nóttina. Fóru orðaskipti
okkar nákvæmlega eins og í draumi mínum . Þegar ég
kom út, fór ég nákvæmlega eins og í drauminum norður
fyrir húsið. Varð þar fyrir mér lítil búð. Þar hitti ég
sömu stúlkuna og í drauminum. Urðu orðaskipti okkar ná-
kvæmlega þau sömu og um nóttina.
Ég lagði nú leið mína út í Austurstræti. Þegar ég kem
að verzlun Jacobsens, sýnist mér margt í gluggum þar til-
heyrandi jólum. Fer ég þar inn og spyr eftir kertaklemm-
um. Eftir nokkra leit fundust rúmlega 20, og fékk ég þar
það, sem ég þarfnaðist.
Samt sem áður þótti mér að fróðlegt myndi að grennsl-
ast eftir klemmunum í Ritfangaverzlun ísafoldar. Kom
þá í ljós, að þar var örlítið til af þeim. Fór ég þvínæst í
verzlunina K. Einarsson & Björnsson. Eftir allmikla leit
fundust einnig þar nokkrar klemmur í ruslakassa uppi á
lofti.
Þar með var kertaklemmu-leiðangrinum lokið.
Rvík, 23. des. 1950.
GuSmundur Stefánsson.
Guðmundur Stefánsson, Mánagötu 14, Reykjavik, var mesti
greindarmaður og merkur í athöfn og orði. Hann andaðist 9.
nóv. 1952. Frásögur hnns hafa legið of lengi með öðrum
óprentuðum plöggum MORGUNS. — Ritstj.
J