Morgunn - 01.12.1956, Side 72
150
MORGUNN
Þriðja endurholdgunarmálið, sem nýlega hefir verið á
dagskrá, má segja að byrjað hafi glæsilega en endað sem
hálfgert hneykslismál. Það er hið víðkunna Bridey-Murp-
hey-mál. Morey Bernstein er amerískur kaupsýslumaður
og mikill áhugamaður um dáleiðslu. Hann dáleiddi konu
eina unga í borginni, sem hann á heima í. Þegar hann
hafði dáleitt hana, spurði hann hana um fyrri jarðvist
hennar, og ekki stóð á svarinu. 1 dásvefninum lýsti konan
sjálfri sér sem Bridey Murphey, fæddri í Cork á Irlandi
árið 1798. Hún sagði frá mörgum atriðum í lífi sínu og
kvaðst hafa andazt í Belfast á Írlandi árið 1864. 20 ára
gömul kvaðst hún hafa gifzt lögfræðingnum Brian Mac-
Carthy, sem síðar hefði verið kennari við Drottningar-
háskólann í Belfast. Hún kvast hafa verið önnur í röðinni
af börnum foreldra sinna. Duncans og Kathleens Murp-
hey. Heimili þeirra hefði verið við Meadows rétt fyrir
utan borgina Cork. Hún sagði að eiginmaður hennar og
faðir hefðu báðir verið lögfræðingar. Hún kvaðst hafa
andazt 66 ára gömul af mjaðmarbroti eftir að hafa dottið
niður stiga. Hún kvaðst hafa dáið, meðan eiginmaður
hennar, Brian MacCarthy, hefði verið í kirkju, og sagðist
hafa sjálf verið viðstödd útför sína. Hún nefndi marga
staði og smáþorp, sem hún kvaðst muna eftir „heima í
írlandi".
Hún lýsti ferð, sem hún kvaðst hafa farið í með föður
sínum til strandarinnar við Antrim, sagði frá skólanum,
sem hún hefði gengið í, kvað hann hafa verið í Crossing
og hefði skólastjórinn heitið ungfrú Straynes. Hún talaði
með írskum málhreim, sagði frá írskum söngvum og döns-
um, nefndi grænmetissalann John Carrigan og kryddvöru-
kaupmanninn Farr.
Eftir að hr. Bernstein hafði dáleitt konuna mörgum
sinnum og viðað að sér miklu efni úr því, sem hún sagði,
tók hann að gera mjög ófullkomnar athuganir á sann-
leiksgildi efnisins og gaf síðan út bók, sem seldist geysi-