Morgunn - 01.06.1967, Qupperneq 33
MORGUNN
27
þær heim klukkan 10 um kvöldið. Var þá heimilið lokað og
að öllu leyti eins og þær höfðu við það skilið á laugardaginn.
En stúlkan var viss í sinni sök. Hún fór í næsta hús og fékk
þar lánað bæði brauð og mjólk og tók að útbúa kvöldverð
handa fóstursyninum, þótt engar horfur væru á, að hann
mundi koma. Þegar frú Guðný hafði orð á þessu við hana,
svaraði hún þvi, að Vilhjálmur kæmi eftir litla stund, hraust-
ur og glaður. Kvaðst hún og sjá, að Theódór, faðir hans, væri
mjög ánægður yfir því, að hún hefði skilið hann rétt.
Klukkan að ganga 12 um kvöldið kom Villi heim, hress
og kátur. Hafði það ráðizt, að hann færi heim degi fyrr en
hann ætlaði.
öðru skipti var það á afmælisdegi frú Guðnýjar, hinn 14.
maí, að kunningjakonur hennar, frú Svava Þórhallsdóttir
og frú Laufey Vilhjálmsdóttir, heimsóttu hana siðari hluta
dagsins. Stúlka sú, sem áður getur, annaðist um að hita
kaffi og leggja á borð í borðstofunni. Um leið og hún kemur
inn í setustofuna til þess að segja frú Guðnýju, að allt sé
tilbúið, spyr hún í lægri nótum, hvar karlmaðurinn sé, sem
komið hafi með frúnum.
,,Mér brá dálítið", segir frú Guðný, ,,því enginn karlmað-
ur hafði verið í fylgd með konunum. Og einnig fannst mér
undarlegt að sjá, að hún hafði sett fjóra bolla á borðið“.
Á eftir spurði frú Guðný hana nánar um þetta. Hún
kvaðst hafa séð manninn greinilega ganga með konunum
inn í stofuna, og ekki verið í vafa um, að hann væri einn af
gestunum. Ekki kvaðst hún hafa séð þennan mann áður,
en lýsti honum greinilega fyrir mér. Kvaðst hún hafa haldið,
að hann hefði vikið sér eitthvað frá í bili, þegar hún sá hann
ekki með hinum gestunum í stofunni.
Frú Guðnýju datt í hug eftir lýsingunni, að þarna hefði
stúlkan séð Halldór Vilhjálmsson f. skólastjóra á Hvann-
eyri og bróður frú Laufeyjar, og sýndi henni góða ljósmynd
af honum. Ekki sagði hún, að þetta væri maðurinn, en þó
væru þeir ekki ólikir í sjón, og sennilega skyldir. ,,En mér
sýndist eitthvað prestslegt við þennan mann“, bætti hún við.