Morgunn - 01.06.1967, Side 74
68
MORGUNN
sóknir Crookes á miðlinum Florence Cook, að þær hafi verið
svo merkar og nákvæmar, að árangur þeirra virðist með
öllu ómögulegt að efa.
Alla ævi naut Sir Crookes trausts og virðingar fyrir vís-
indaafrek sin. Hann var um skeið forseti konunglega vís-
indafélagsins (Royal Society), hlaut óteljandi heiðursmerki
og heiðursviðurkenningar fyrir störf sín, og var aðlaður ár-
ið 1897. Hann var og um skeið forseti Brezka Sálarrann-
sóknafélagsins.
Það vakti því að vonum mikla athygli og furðu margra,
þegar út kom árið 1962 bók eftir mann að nafni Trevor H.
Hall, er hann nefndi The Spiritualists, þar sem ráðizt er á
þennan mæta vísindamann meira en f jörutíu árum eftir lát
hans, og honum borin á brýn svívirðileg svik í sambandi við
rannsóknir hans á miðlinum Florence Cook.
Þessi herferð gegn Sir William Crookes látnum, er byggð
á því, að maður nokkur að nafni Anderson, hafi árið 1949
skýrt frá því, þá orðinn 79 ára að aldri og sennilega elliær,
að árið 1893 hafi hann, þá skólapiltur rúmlega tvítugur,
heimsótt Florence Cook, sem þá var gift kona og átti tvær
dætur á milli fermingar og tvítugs. Segir hann, að hún hafi
þegar gefið í skyn, að hún vildi eiga vingott við hann. Síðan
hafi hún skipað dóttur sinni að æfa sig á píanóið þar niðri í
stofunni, og sagzt ætla að hafa opna hurðina, svo að hún
gæti fylgzt með því, að hún svikist ekki um. Að því búnu
hefði hún farið upp á loft, en hvislað að Anderson að koma
á eftir sér. Kvaðst hann hafa farið upp í svefnherbergi henn-
ar iitlu seinna, hefði hún þá verið háttuð og legið að mestu
nakin í rúminu.
Segir hann, að hún hafi sagt sér í óspurðum fréttum, að
allt hennar miðilsstarf væri eintóm svik. Ennfremur hafi
hún sagt, að hún hafi haldið við Sir William Crookes. —
Líkamningurinn Katie King hafi verið einber uppspuni og
rannsóknirnar látalæti til þess eins, að þau Crookes gætu náð
saman og hann gæti haft hana í húsi sínu og daðrað við