Morgunn - 01.06.1967, Page 39
MORGUNN 33
Hann var kornungur, þegar bróðir hans dó, og varð þá móð-
ur sinni til óumræðilegrar huggunar og trausts ...“
,,... Þú biður mig að segja, hvað hún heiti. Ég heyri Wyn
eða Vin — næ ekki meiru. Og svo er hér einhver, sem enn
er á lífi. Hún sýnir mér nafn hans — erfitt að ná því. Henry,
eða er það Harry? Ég get ekki meira. Allt er að verða svo
óskýrt ...“
Þetta eru aðeins nokkrar glepsur úr bréfinu, en fellt nið-
ur það, sem minna máli skiptir. Um þetta bréf segir Ten-
nant:
„Móðir mín var 81 árs, er hún dó. Bróðir minn, Christo-
pher, féll í orustu 3. september 1917, þá 19 ára að aldri“.
Hann segir, að lýsingin á móður sinni sé rétt, það sem hún
nái. Þau hafi unnað mjög hvort öðru, en því verði ekki neit-
að, að gamla konan hafi verið dálítið ráðrík yfir sér. Hann
var fæddur 9. apríl 1913, og því barn að aldri, þegar bróðir
hans dó. Móðir hans hét Winifred, og eru því hinir þrír stafir
réttir. En hann veit ekki til, að nafnið hafi verið stytt og
hún kölluð aðeins Win. Sjálfur heitir hann að fornöfnum
Augustus Henry.
II. bréf (29. ágúst 1957)
„Astor er kominn. Já. Og nú er allt öðruvísi og betra en í
gær. Ég sé nú aftur gömlu hefðarkonuna, og hún sýnir mér
bókstafinn W. Þar er fyrsti stafurinn í nafninu hennar. Ég
nota hér orðið hefðarkona í hinni gömlu merkingu þess
orðs ...“
Síðan tekur Astor að segja frá því, að hún hafi verið hátt-
vís kona og menntuð, enda þótt hún væri ekki lærð, vönd að
virðingu sinni í hvívetna, fremur hlédræg, en var þó all-
mikil heimskona á yngri dögum og tók þá mikinn þátt í
félagslífi með heldra fólki. Eitt segir hann hafa verið sér-
kennilegt í fari hennar og valdið því, að hún á stundum þráði
einveru og kaus ekki að stefna til mjög náinna vináttu-
kynna. Hún hafði sérstaka gáfu til þess að sjá menn niður
i kjölinn. Og stundum var sem lifði hún í tveim heimum.
3