Morgunn - 01.06.1967, Page 45
MORGUNN
39
málið í bréfinu en þetta: „Ég á kunningja, sem bað mig
að mælast til þess við þig, að þú hefðir upp á henni móð-
ur hans og bæðir hana að skrifa honum línu“. Auðvitað
varð að segja henni nafn mannsins og helzt konunnar
líka. Annars gat hún ekkert aðhafzt í málinu. Svipað
varð Salter að gjöra.
4. Ekki hef ég í höndum upplýsingar um það, á hvaða tíma
dagsins 27. ágúst G. Cummins kom heim til sín og opnaði
bréfið. Sennilega hefur það ekki verið fyrr en um kvöld-
ið. En fyrsta bréfið ritar hún svo ósjálfrátt að morgni
þess 28. ágúst. Að minnsta kosti tekur hún það sjálf fram,
að öll hin 40 bréf hafi hún ritað mjög snemma að morgni,
vegna þess, að þá hafði hún helzt næði og kyrrð, áður en
aðrir komu á fætur. Hún hefur því haft ansi stuttan tíma
til þess að leita upplýsinga um Tennant og móður hans,
aðeins blánóttina. — 1 því sambandi verður manni að
spyrja: Ef G. Cummins var aðeins svikari, sem þarna
fékk upp í hendurnar tækifæri til þess að blekkja ritara
Brezka Sálarrannsóknafélagsins og þennan Tennant,
hvers vegna gaf hún sér þá ekki góðan tíma til þess að
afla sér sem víðtækastra upplýsinga um þessi mæðgin?
Ekkert lá á. Hún gat undirbúið slík falsbréf í viku, hálf-
an mánuð eða lengur. Og það væru sjálfsögö hyggindi af
henni að gera það og flana þar ekki að neinu. 1 þess stað
rýkur hún til og skrifar fyrsta bréfið þegar í stað.
5. f bréfi, sem hún skrifar Salter 31. ágúst og sendir hon-
um tvö fyrstu bréfin, segir hún meðal annars á þessa
leið: ,,Ég kannaðist ekkert við þennan Tennant. En mér
skildist, að ég yrði að hef jast handa þegar í stað. Annars
gætu efagjarnir menn sagt, að ég hefði tafið timann til
þess að reyna að afla mér upplýsinga um þennan mann.
Mér finnast þessi tvö bréf talsvert sérkennileg. Annað
hvort eru þau eintómur heilaspuni, eða þau hitta markið.
Þar koma fram ákveðnar og skýrar fullyrðingar og drög
að ævisögu, og ennfremur nokkur nöfn. Ég læt þau bara
flakka, þótt þau kunni að reynast eintóm vitleysa“.