Morgunn - 01.06.1967, Side 40
34
MORGUNN
Hún segist ung hafa byrjað á því að skrifa ósjálfrátt, en
gerði þó ekki mikið að því, og var þar varfærin og efagjörn.
Seinna, og löngu eftir að hún giftist, varð þessi gáfa sterkari.
Astor segir, að þarna séu fleiri viðstaddir. Hann kveðst
sjá gamlan mann um nírætt, hámenntaðan mann af skozk-
um ættum, en móðir hans hafi verið ensk. Hann er orðinn
mjög hrumur, en kjarkurinn sýnist hafa verið óbilandi.
Hann dó á stríðsárunum. Og hann kveðst heyra nafnið
Gerald. Hann segir, að þessi maður sé á tali við Win og þau
hafi verið góðir vinir. Ennfremur segir Astor, að ungur mað-
ur birtist, Francis að nafni, er hafi dáið af slysförum er-
lendis, hann hafi hrapað og hafi það gerzt eitthvað i sam-
bandi við íþróttir. Win verður mjög fegin að hitta hann.
Þau hafi þekkzt og talazt við margoft undir einhverjum
einkennilegum og óvenjulegum kringumstæðum.
Hér er aðeins lauslega endursagt meginefni bréfsins. Um
þetta bréf segir Tennant, að það, sem þar segir um móður
hans, sé yfirleitt rétt. f dagbók hennar frá 1902 segir frá því,
að hún hafi um þær mundir tekið virkan þátt í félagslífinu
í Lundúnum, sat þar í fínum veizlum, var í ferðalögum, og
tók þátt i kappreiðum. Þar segir hún svo meðal annars:
„Hvernig getur nokkrum dottið í hug að dvelja degi lengur
í sveit á Englandi að vetrarlagi, ef hann getur hjá því kom-
ist? Það er viðurstyggð auðnar og einstæðingsskapar . . . Ég
fer til Lundúna á morgun, Guði sé lof!“
Tennant segir: „Þrá móður minnar til einveru var mjög
ríkur þáttur í eðli hennar. Stundum vildi hún enga gesti sjá,
jafnvel þótt væru kunningjar hennar. En hún sagði mér
aldrei frá því, hvernig á þessu stæði. Hann kveðst ekki vita,
hvort það sé rétt, að hún hafi iðkað ósjálfráða skrift þegar á
barnsaldri. „Ég hef haldið, að hún hafi ekki byrjað verulega
á því, fyrr en eftir það, að Daphne, systir min dó árið 1908“,
segir hann.
Gerald W. Balfour jarl var fæddur 1854 og dó 1944. Það
er rétt, að hann var skozkur í föðurætt, en móðir hans var
ensk. „Hann var góður vinur móður minnar“, segir Ten-